Loading Viðburðir

« Allir Viðburðir

  • This viðburður has passed.

Siðareglur endurskoðanda

2. desember, 2025-09:00 - 11:00

Siðareglur endurskoðanda og nýjar kröfur samþættingu stjórnarhátta og reikningsskila 

Nú liggur fyrir að innleiða nýja staðla Alþjóðasamtaka innri endurskoðenda þar sem siðareglur eru orðnar samþættar öðrum stöðlum. Sambærilegar breytingar hafa þegar átt sér stað í siðareglum ytri endurskoðenda. Á sama tíma hafa komið fram nýjar kröfur og alþjóðleg viðmið samþættingu stjórnarhátta og reikningsskila hjá stærri skipulagsheildum.

Nýju viðmiðin hafa áhrif á endurskoðendur skráðra félaga, fjármálafyrirtækja, lífeyrissjóða, sveitarfélaga og ríkisaðila. Mikilvægt er að ábyrgðaraðilar stjórnarhátta rækji skyldur sínar um gagnsæi, áhættustýringu og innra eftirlit. Innri endurskoðendum og ytri endurskoðendum ber svo að leggja sjálfstætt mat og veita upplýsingar sem styðja við að þessar skyldur séu uppfylltar.

Á námskeiðinu verður fjallað um ný ákvæði GIAS 2024, Integrated Thinking Principles IFRS Foundation (2024) og tilskipun ESB um sjálfbærnireikningsskil (CSRD), með áherslu á ábyrgð innri og ytri endurskoðanda, gagnsæi og sannreynanlegar stjórnendaupplýsingar í árlegum reikningsskilum.

Námskeiðið er sjálfstætt framhald námskeiðs um siðareglur sem haldið var á síðasta ári og er skipulagt í samstarfi við Félag um innri endurskoðun.

Nánar um kennara

Ásgeir Brynjar Torfason er Doktor í fjármálum, ritstjóri Vísbendingar og kennari í viðskiptasiðfræði.
Sigurjón G. Geirsson er löggiltur endurskoðandi og innri endurskoðandi Háskóla Íslands.

Verð: 19.900 kr

Snemmskráning til og með 23. nóvember. Almennt verð er 21.900 kr.

Námskeið þetta gefur 2 endurmenntunareiningar á sviði siðareglna. 

Skráning fer fram hjá Endurmenntun Háskóla Íslands: https://endurmenntun.is/namskeid/19514/sidareglur-endurskodanda/355177

Nánar

Staður

  • Zoom