Vefnámskeið – Siðareglur endurskoðanda og nýjar kröfur um samþættingu stjórnarhátta og reikningsskila

Uppfært - Afsláttarkóði við skráningu - Snemmskráning til og með 23. nóvember

Endurmenntun Háskóla Íslands heldur vefnámskeið þann 2. desember 2025 um siðareglur endurskoðanda og nýjar kröfur samþættingu stjórnarhátta og reikningsskila.  Námskeiðið er haldið í samstarfi við Félag um innri endurskoðun.

Nú liggur fyrir að innleiða nýja staðla Alþjóðasamtaka innri endurskoðenda þar sem siðareglur eru orðnar samþættar öðrum stöðlum. Sambærilegar breytingar hafa þegar átt sér stað í siðareglum ytri endurskoðenda. Á sama tíma hafa komið fram nýjar kröfur og alþjóðleg viðmið samþættingu stjórnarhátta og reikningsskila hjá stærri skipulagsheildum.  

Nýju viðmiðin hafa áhrif á endurskoðendur skráðra félaga, fjármálafyrirtækja, lífeyrissjóða, sveitarfélaga og ríkisaðila. Mikilvægt er að ábyrgðaraðilar stjórnarhátta rækji skyldur sínar um gagnsæi, áhættustýringu og innra eftirlit. Innri endurskoðendum og ytri endurskoðendum ber svo að leggja sjálfstætt mat og veita upplýsingar sem styðja við að þessar skyldur séu uppfylltar. 

Á námskeiðinu verður fjallað um ný ákvæði GIAS 2024, Integrated Thinking Principles IFRS Foundation (2024) og tilskipun ESB um sjálfbærnireikningsskil (CSRD), með áherslu á ábyrgð innri og ytri endurskoðanda, gagnsæi og sannreynanlegar stjórnendaupplýsingar í árlegum reikningsskilum.

Námskeiðið er sjálfstætt framhald námskeiðs um siðareglur sem haldið var á síðasta ári og er skipulagt í samstarfi við Félag um innri endurskoðun.

Nánar um kennara

Ásgeir Brynjar Torfason er Doktor í fjármálum, ritstjóri Vísbendingar og kennari í viðskiptasiðfræði. 
Sigurjón G. Geirsson er löggiltur endurskoðandi og innri endurskoðandi Háskóla Íslands.

Þri. 2. des kl. 9:00-11:00

Fer fram í rauntíma á Zoom

Verð: 19.900 kr

Snemmskráning til og með 23. nóvember, 19.900 kr. Almennt verð er 21.900 kr.

Félagsfólki Félags um innri endurskoðun býðst 20% afsláttur af öllum námskeiðum* á dagskrá veturinn 2025 - 2026 hjá Endurmenntun Háskóla Íslands.

Skráning fer fram á heimasíðu Endurmenntunar og til að virkja afsláttinn þarf að nota afsláttarkóðann INNRIEND2526 þegar pöntun er gerð.

Námskeið þetta gefur 2 endurmenntunareiningar á sviði siðareglna. 

Skráning fer fram hjá Endurmenntun Háskóla Íslands: Siðareglur endurskoðanda

Róttæk skýrsluskrif

Það er innri endurskoðendum mikilvægt að vera færir pennar til að geta átt skýr samskipti innan sem utan starfseiningar sinnar. Félag um innri endurskoðun kynnir því í samstarfi við IIA Svíþjóð þetta nýja námskeið með Söru I James sem fer fram fyrir hádegi dagana 12. - 13. september (kl. 7:00 - 11:00). Námskeiðið fer fram á ensku. Þetta námskeið er sérlega vinsælt hjá endurskoðunar-, áhættu- og sviksemisteymum, sem og hjá öðrum sem vilja endurmeta núverandi fyrirkomulag skýrsluskrifa sinna. 

Efnistök námskeiðs

Námskeiðið hjálpar þátttakendum að útbúa skýr og sannfærandi skrif með því að yfirfara rökfærslu, orðfæri og eiginlegan tilgang skriflegra samskipta. Þetta námskeið er einstaklega hagnýtt og sniðið að hverjum þátttakanda sem notast við eigin skrif við verkefnavinnu.

Eftir námskeiðið munu þátttakendur geta tjáð sig á skilvirkari hátt gagnvart mismunandi lesendahópum með því að:

  • Fara að rótum eigin hugsana, markmiða og forsendna;
  • Koma auga á slæmar venjur sem gera skrifleg samskipti erfið aflestrar og illskiljanleg; og
  • Nota þekkta aðferðafræði við að koma frá sér skýrum og hnitmiðuðum skrifum.
  • Þátttakendur munu geta skrifað skýrslur sem uppfylla þarfir lesenda eftir að hafa æft:
  • Að greina bæði heildarskipulag skýrslu sem og einstaka þætti hennar til að ná sem mestum árangri; og
  • Fara yfir eigin skrif og annarra á markvissan, skilvirkan og afkastamikinn hátt.

Ítarlegt efni

1. Skýrleiki – kenningin:

  • Tengsl milli skýrrar hugsunar og skýrra skrifa
  • Hversu skilvirk eru núverandi samskipti?
  • Góð skrif og frammistöðutengsl
  • Ráð frá fagaðilum – hversu gagnleg eru þau?

2. Skýrleiki – framkvæmdin: Hvernig getum við sagt það sama í færri orðum?

  • Minnkum orðagjálfrið
  • Virk og óvirk skrif
  • Uppvakningar (hvernig má forðast að sjúga lífið úr setningum)

3. Málfræði, greinarmerki og notkun

  • Hvers vegna skiptir góð málfræði, greinarmerki og notkun þeirra máli?
  • Rökfræði málfræðinnar og lagaleg áhrif illa uppbyggðra setninga

4. Skýrslur

  • Hver er tilgangur skýrslu?
  • Að skipuleggja eigin hugsanir til að ná fram meiri áhrifum
  • Uppbygging góðrar skýrslu
  • Niðurstöður, athugasemdir og tillögur til úrbóta
  • Samantekt

5. Yfirferð og ritstjórn

  • Hvað gerir það að verkum að yfirlestrarferli virkar vel?
  • Hverjar eru skyldur beggja aðila?
  • Ritstjórnarferlið – gagnleg ráð við að fara yfir skýrslur.

Námskeiðsstjóri: Sara I James

Með yfir 30 ára reynslu af kennslu, ritun, útgáfu og fyrirtækjarekstri í Bandaríkjunum og Evrópu veitir Sara þjálfun í skýrslugerð um allan heim í gegnum fyrirtæki sitt Getting Words to Work(™). Hún hefur skrifað fjölda greina um tungumál og skýrslugerð og haldið framsögu á alþjóðlegum ráðstefnum.

Dagsetningar: 12. - 13. september 2023

Staðsetning: Á vefnum í gegnum Zoom

Tímasetning: 7:00 - 11:00 báða dagana

Verð: 70.000 ISK

CPE: 8

Skráning: http://www.fie.is/skraning

Fram þarf að koma nafn og kennitala þátttakanda og netfang sem viðkomandi mun nota til að taka þátt í gegnum Zoom. 

Kennitala greiðanda þarf einnig að fylgja sé hún önnur en hjá þátttakanda.

Námskeiðið fer fram á ensku.

Slóð á námskeið hjá IIA Svíþjóð: https://www.theiia.se/utbildningar_aktiviteter/#!educourse=546674

Næstu viðburðir

WP2Social Auto Publish Powered By : XYZScripts.com