Alþjóðasamtök innri endurskoðenda (The IIA) hafa gefið út  alþjóðlega umgjörð starfshátta (Internal Professional Practice Framework, IPPF) fyrir faglega framkvæmd innri endurskoðunar, sem samanstendur af:

  1. Heimsstöðlum innri endurskoðunar (Staðlarnir) (Standards)
  2. Efnislegum kröfum (Topical Requirements)
  3. Alþjóðlegum leiðbeiningum (Global Guidance)

Meginreglur um faglega innri endurskoðun

  • Sýnir heilindi.
  • Sýnir fram á færni og beitir viðeigandi faglegri aðgát.
  • Ástundar hlutlægni og er laus við óeðlileg áhrif (sjálfstæð).
  • Tekur mið af stefnum, markmiðum og áhættu skipulagsheildar.
  • Hefur viðeigandi stöðu í skipuriti og fullnægjandi auðlindir.
  • Sýnir í verki gæði og stöðugar umbætur.
  • Ástundar skilvirk samskipti.
  • Veitir áhættumiðaða staðfestingu.
  • Býr yfir innsæi, frumkvæði og framsýni.
  • Stuðlar að umbótum innan skipulagsheildar.

Skilgreining á innri endurskoðun

Innri endurskoðun er sjálfstæð starfsemi sem veitir óháða og hlutlæga staðfesting og ráðgjöf, sem er ætlað er að vera virðisaukandi og bæta rekstur skipulagsheildar. Með kerfisbundnum og öguðum vinnubrögðum leggur innri endurskoðun mat á og bætir virkni áhættustýringar, eftirlits og stjórnarhátta og stuðlar þannig að því að skipulagsheild nái markmiðum sínum.

Staðlarnir

Félag um innri endurskoðun hefur þýtt Staðlana á íslensku eftir forskrift IIA og núverandi útgáfa tók gildi þann 9. janúar 2025. Sjá hér

Siðareglur 

Siðareglur alþjóðasamtaka og þýðing Félag um innri endurskoðun er að finna hér.

Leiðbeiningar um innleiðingu staðlanna

Alþjóðsamtökin hafa gefið út leiðbeiningar um innleiðingu staðlana (Implementation Guidance) og eru þær aðgengilegar félagsmönnum FIE á síðu alþjóðsamtakana, hér.

Að auki hafa Alþjóðsamtökin útbúið fyrir félagsmenn talsvert ítarefni um innri endurskoðun (Supplemental Guidance), sjá  hér.

Þriggja þrepa líkanið

Félag um innri endurskoðun hefur þýtt leiðbeiningar Alþjóðasamtakana um þriggja þrepa líkanið (Three Lines of Defence) og er skjalið hér

Næstu viðburðir