Siðferði og fagmennska (Ethics and Professionalism)
Meginregla 1 Sýnið heilindi
Innri endurskoðendur sýna heilindi í störfum sínum og hegðun.
Meginregla 2 Ástundið hlutlægni
Innri endurskoðendur ástunda hlutlægni og óhlutdrægni í störfum sínum og ákvarðanatöku sem innri endurskoðendur.
Meginregla 3 Sýnið fram á hæfni
Innri endurskoðendur beita þekkingu, færni og getu til að sinna hlutverki sínu og skyldum á árangursríkan hátt.
Meginregla 4 Beitið viðeigandi faglegri aðgát
Innri endurskoðendur beita viðeigandi faglegri aðgát við skipulagningu og framkvæmd innri endurskoðunarþjónustu.
Meginregla 5 Gætið trúnaðar
Innri endurskoðendur nota og vernda upplýsingar á viðeigandi hátt.
Ábendingum um meint brot á siðareglum félagsins ber að senda til formanns siðanefndar, sjá nánar reglur þar um.
