Loading Viðburðir

« Allir Viðburðir

Morgunverðarfundur í Arion banka – 30. sept.

30. september-08:30 - 10:00

Arion banki hf. býður félagsfólki FIE heim í morgunverðarfund sem haldinn verður miðvikudaginn 30. september kl. 8.30 í höfuðstöðvum bankans að Borgartúni 19.

Dagskráin stendur til kl. 10.00 og er svohljóðandi:

  • Netöryggi á gervigreindartímum – Stefán Skúlason öryggissérfræðingur hjá Arion banka
  • Lærdómur eftir 2026 Financial Service Exchange ráðstefnuna – Anna Sif Jónsdóttir innri endurskoðandi Arion banka
  • Reynsla stjórnenda af því að vinna með innri endurskoðun

Þessi morgunverðarfundur er fyrsti viðburður vetrarins og því alltaf spennandi að hittast að nýju og bera saman bækur sínar og helstu áherslur. Að fenginni reynslu er mikið skrafað og spjallað um málefni innri endurskoðunar, enda hluti af viðburðunum okkar að við miðlum þekkingu og áherslum á faglegu nótunum hvert til annars. Ekki síður til að hefja samtal við félaga okkar sem eru að stíga inn á þessa senu okkar. Við hvetjum félagsfólk okkar því eindregið til að ráðstafa tíma í slíkt uppbyggilegt og áhugavert spjall að fyrirlestrunum afstöðnum.

Við hlökkum til að hitta ykkur!!

Arion banki, Borgartúni 19, 105 Reykjavík
Miðvikudagur 30. september 2026
Kl. 8:30 - 10:00
CPE: 1,5

Veitingar í boði
Frír viðburður

Skráning fer fram hér

Nánar

Staður

  • Arion banki
  • Borgartúni 19
    Reykjavík,105Iceland
    + Google Map