Vefnámskeið – Siðareglur innri og ytri endurskoðanda
11. desember-09:00 - 11:00
Endurmenntun Háskóla Íslands heldur vefnámskeið þann 11. desember 2024 um siðareglur fyrir innri og ytri endurskoðendur
Námskeiðið er haldið í samstarfi við Félag um innri endurskoðun.
Fyrirlesarar: Sigurjón G. Geirsson, innri endurskoðandi HÍ og Ásgeir B. Torfason, doktor í fjármálum og kennari í viðskiptasiðfræði.
ATH. félagsmenn FIE fá 20% afslátt af öllum námskeiðum á dagskrá veturinn 2024 - 2025 hjá EHÍ (afsláttarkóði var sendur á póstlista félagsmanna þann 8. nóvember 2024).
Námskeiðið gefur 2 endurmenntunareiningar á sviði siðareglna.
Skráning fer fram á vefsíðu EHÍ.