Risk in Focus 2027 - niðurstöður könnunar

Risk in Focus er árleg könnun sem tekur til helstu áhættuþátta sem skipulagsheildir í Evrópu standa frammi fyrir. Könnunin er nú framkvæmd í ellefta sinn og veitir innri endurskoðendum, endurskoðunarnefndum og stjórnum mikilvæga innsýn í hvernig áhættuumhverfið er að þróast sem og áherslur yfirmanna innri endurskoðunar í Evrópu í takt við það.

Risk in Focus 2027 greinir síbreytilegt áhættuumhverfi þar sem áhættuþættir verða sífellt samtengdari. Netöryggi er áfram stærsti áhættuþátturinn, en stafræn umbreyting, ný tækni og gervigreind, ásamt efnahagslegri og pólitískri óvissu, fylgja þar á eftir. Niðurstöðurnar varpa ljósi á hvernig hraðar tæknibreytingar, pólitísk óvissa og flóknara regluverk eru farnar að vera áskorun við hefðbundna nálgun og mat á stjórnarháttum, áhættustýringu og áætlanagerð í innri endurskoðun.

Skýrslan fjallar jafnframt um hvernig innri endurskoðunareiningar bregðast við breyttu áhættuumhverfi, meðal annars með sveigjanlegri áætlun innri endurskoðunar, aukinni samhæfingu og samstarfi og með því að styðja stjórnir við að efla framsýna stjórnarhætti.


Helstu niðurstöður

1. Stafræn umbreyting, ný tækni og gervigreind færðust úr þriðja sæti í annað sæti.
52% yfirmanna innri endurskoðunar töldu þennan áhættuþátt meðal fimm stærstu áhættuþátta. Stjórnarhættir, áhættustýring og eftirlitsferlar virðast þó ekki þróast í takt við þann hraða sem nýsköpun er á, á sviði gervigreindar, sem getur skapað blindsvæði í áhættustýringu.

2. Netöryggi og gagnaöryggi eru áfram hæst metnu áhættuþættirnir, en 86% yfirmanna innri endurskoðunar töldu þau meðal fimm stærstu áhættuþátta. Sífellt flóknari netárásir, ógnir tengdar gervigreind, veikleikar í aðfangakeðjum og pólitísk áhætta stuðla að áframhaldandi áhættu.

3. Efnahagsleg og pólitísk óvissa færðist upp í þriðja sæti, en þroski áhættustýringar og umfang innri endurskoðunar á þessu sviði er áfram tiltölulega lítið. Niðurstöðurnar benda til þess að skipulagsheildir þurfi að styrkja stjórnarhætti, viðnámsþrótt og getu til upplýstrar ákvarðanatöku til að bregðast við síbreytilegu ytra umhverfi.

Hlekkur á niðurstöðu könnunarinnar


Risk in Focus 2027 – yfirlit fyrir stjórnir

Yfirlit fyrir stjórnir dregur saman helstu niðurstöður skýrslunnar fyrir stjórnir og yfirstjórn.

Eftir því sem áhættuþættir verða sífellt samtengdari þurfa stjórnir að beita sveigjanlegri og framsýnni yfirumsjón. Innri endurskoðunareiningar gegna þar mikilvægu hlutverki, ekki aðeins með staðfestingarþjónustu, heldur einnig með því að veita innsýn og faglegt mat á stefnumótandi viðfangsefnum á borð við innleiðingu gervigreindar, viðnámsþrótt gagnvart netógnum og efnahagslega og pólitíska óvissu.

Yfirlitið dregur fram helstu áherslur, nýjar og vaxandi áhættur og atriði er varða stjórnarhætti sem stjórnir og yfirstjórn þurfa að hafa í huga á komandi ári.

Hlekkur á yfirlit fyrir stjórnir