Arion banki hf. býður félagsfólki FIE heim í morgunverðarfund sem haldinn verður miðvikudaginn 30. september kl. 8.30.
Dagskráin stendur til kl. 10.00 og er svohljóðandi:
Netöryggi á gervigreindartímum – Stefán Skúlason öryggissérfræðingur, Arion banka
Lærdómur eftir 2026 Financial Service Exchange ráðstefnuna – Anna Sif Jónsdóttir innri endurskoðandi Arion banka
Reynsla stjórnenda af því að vinna með innri endurskoðun - Jón Finnbogason, framkvæmdastjóri Stefnis
Þessi morgunverðarfundur er fyrsti viðburður vetrarins og því alltaf spennandi að hittast að nýju og bera saman bækur sínar og helstu áherslur. Að fenginni reynslu er mikið skrafað og spjallað um málefni innri endurskoðunar, enda hluti af viðburðunum okkar að við miðlum þekkingu og áherslum á faglegu nótunum hvert til annars. Ekki síður til að hefja samtal við félaga okkar sem eru að stíga inn á þessa senu okkar. Við hvetjum félagsfólk okkar því eindregið til að ráðstafa tíma í slíkt uppbyggilegt og áhugavert spjall að fyrirlestrunum afstöðnum.
Við hlökkum til að hitta ykkur!!
Arion banki, Borgartúni 19, 105 Reykjavík Miðvikudagur 30. september 2026 Kl. 8:30 - 10:00 CPE: 1,5
Risk in Focus er árleg könnun sem tekur til helstu áhættuþátta sem skipulagsheildir í Evrópu standa frammi fyrir. Könnunin er nú framkvæmd í ellefta sinn og veitir innri endurskoðendum, endurskoðunarnefndum og stjórnum mikilvæga innsýn í hvernig áhættuumhverfið er að þróast sem og áherslur yfirmanna innri endurskoðunar í Evrópu í takt við það.
Risk in Focus 2027 greinir síbreytilegt áhættuumhverfi þar sem áhættuþættir verða sífellt samtengdari. Netöryggi er áfram stærsti áhættuþátturinn, en stafræn umbreyting, ný tækni og gervigreind, ásamt efnahagslegri og pólitískri óvissu, fylgja þar á eftir. Niðurstöðurnar varpa ljósi á hvernig hraðar tæknibreytingar, pólitísk óvissa og flóknara regluverk eru farnar að vera áskorun við hefðbundna nálgun og mat á stjórnarháttum, áhættustýringu og áætlanagerð í innri endurskoðun.
Skýrslan fjallar jafnframt um hvernig innri endurskoðunareiningar bregðast við breyttu áhættuumhverfi, meðal annars með sveigjanlegri áætlun innri endurskoðunar, aukinni samhæfingu og samstarfi og með því að styðja stjórnir við að efla framsýna stjórnarhætti.
Helstu niðurstöður
1. Stafræn umbreyting, ný tækni og gervigreind færðust úr þriðja sæti í annað sæti. 52% yfirmanna innri endurskoðunar töldu þennan áhættuþátt meðal fimm stærstu áhættuþátta. Stjórnarhættir, áhættustýring og eftirlitsferlar virðast þó ekki þróast í takt við þann hraða sem nýsköpun er á, á sviði gervigreindar, sem getur skapað blindsvæði í áhættustýringu.
2. Netöryggi og gagnaöryggi eru áfram hæst metnu áhættuþættirnir, en 86% yfirmanna innri endurskoðunar töldu þau meðal fimm stærstu áhættuþátta. Sífellt flóknari netárásir, ógnir tengdar gervigreind, veikleikar í aðfangakeðjum og pólitísk áhætta stuðla að áframhaldandi áhættu.
3. Efnahagsleg og pólitísk óvissa færðist upp í þriðja sæti, en þroski áhættustýringar og umfang innri endurskoðunar á þessu sviði er áfram tiltölulega lítið. Niðurstöðurnar benda til þess að skipulagsheildir þurfi að styrkja stjórnarhætti, viðnámsþrótt og getu til upplýstrar ákvarðanatöku til að bregðast við síbreytilegu ytra umhverfi.
Yfirlit fyrir stjórnir dregur saman helstu niðurstöður skýrslunnar fyrir stjórnir og yfirstjórn.
Eftir því sem áhættuþættir verða sífellt samtengdari þurfa stjórnir að beita sveigjanlegri og framsýnni yfirumsjón. Innri endurskoðunareiningar gegna þar mikilvægu hlutverki, ekki aðeins með staðfestingarþjónustu, heldur einnig með því að veita innsýn og faglegt mat á stefnumótandi viðfangsefnum á borð við innleiðingu gervigreindar, viðnámsþrótt gagnvart netógnum og efnahagslega og pólitíska óvissu.
Yfirlitið dregur fram helstu áherslur, nýjar og vaxandi áhættur og atriði er varða stjórnarhætti sem stjórnir og yfirstjórn þurfa að hafa í huga á komandi ári.
Þórarinn Ólason hlaut CIA vottun hjá Alþjóðasamtökum innri endurskoðenda núna í júlí 2026 eftir að hann lauk CIA Challenge Exam. Fyrir er Þórarinn með CISA vottun frá ISACA auk M.Acc. gráðu frá HÍ og B.Sc. í Viðskiptafræði frá Háskólanum á Bifröst.
Þórarinn hefur frá árinu 2019 starfað sem sérfræðingur í endurskoðun upplýsingatækni við innri endurskoðun Arion banka. Áður vann hann hjá EY við endurskoðun, ráðgjöf og innri endurskoðun.
Stjórn FIE óskar Þórarni innilega til hamingju með vottunina.
Við í stjórn FIE þökkum ykkur hjartanlega fyrir hve vel Innri Endurskoðunardagur FIE heppnaðist í gær!
Það er óhætt að segja að mæting hafi verið hreint út sagt frábær og lineup-ið af fyrirlesurum var sérlega flott. Bæði fyrirlesarar og efnistök voru af ólíkum toga og áttu það sameiginlegt að eiga sterkt erindi til okkar allra. Það mátti skynja að veislugestir kunnu vel að meta og að við vorum flest í hátíðarskapi!
Við smelltum af nokkrum myndum á viðburðinum og erum að rúlla fyrirlestrunum upp á heimasíðu félagsins, undir "Glærur frá fundum FIE".
Svo er könnun á leiðinni til útsendingar þar sem ykkur verður boðið að koma á framfæri skoðunum ykkar um viðburði félagsins o.fl. Við erum þakklát fyrir hvert það svar sem okkur berst til baka úr könnuninni, því við viljum auðvitað fá staðfestingu á því sem vel er gert og ekki síður að fá tækifærið til að geta gert enn betur. Þannig að fyrirfram "Takk" fyrir að taka þátt í könnuninni!
Að endingu þá erum við búin að ákveða dagsetningu fyrir Aðalfundinn okkar. Það er auðvelt að leggja bæði dagsetningu og staðsetningu á minnið því við erum að tala um 5. maí nk. (fimmti fimmti!) og staðsetningin er sú sama stað og í fyrra, Grand Hotel við Sigtún. Við hlökkum til að hitta ykkur þar aftur!!
Innri endurskoðunardagur FIE 2026 verður haldinn hátíðlegur fimmtudaginn 19. mars að Sjálandi í Garðabæ. Viðburðurinn hefst kl. 13 og stendur til kl. 17.
Lögð er áhersla á að efnistök endurspegli helstu áherslur sem fagheimur innri endurskoðunar horfir til í dag og þær áskoranir sem smærri einingar standa einkum frammi fyrir.
Fyrirlesarar eru úr efri hillunum og eru eftirfarandi:
1: Ann Brook BSc. (Hons.) - CFCIIA, CIA, QIAL, PGCert (Res), FHEA, CBTS Member International Internal Audit Standars Board at the IIA UK
2: Sóley Kaldal - Áhættustýringar- og öryggisverkfræðingur Sérfræðingur í innri endurskoðun Landsbankans og fyrrum aðalsamningamaður alþjóðasamninga hjá Stjórnarráðinu
3: Helga Hlín Hákonardóttir - héraðsdómslögmaður og sérfræðingur í stjórnarháttum Eigandi og ráðgjafi Strategíu
4: Þórir Ralston - CIA, MACC, tölvunarfræðingur og viðskiptafræðingur Sérfræðingur í innri endurskoðun Íslandsbanka
Dagskrá viðburðarins samanstendur að þessu sinni af eftirfarandi erindum:
Miðar á viðburðinn eru til sölu hér CPE einingar fyrir viðburðinn eru 3