Stjórn Félags um innri endurskoðun (FIE) boðar hér með til félagsfundar, sbr.  3. mgr. 6. gr. í samþykktum félagsins.

Dagskrá:

  1. Kosning nýs stjórnarmanns til setu í stjórn FIE út yfirstandandi kjörtímabil.

Eitt framboð hefur borist til stjórnar:

Guðjón Hlynur Guðmundsson, Verkefnastjóri í innri endurskoðun hjá Innri endurskoðun og ráðgjöf Reykjavíkurborgar. Guðjón hefur yfir 20 ára reynslu af endurskoðunar- og eftirlitsstörfum. Hann hefur starfað hjá Innri endurskoðun Reykjavíkurborgar frá árinu 2018 en starfaði áður hjá Fjármálaeftirlitinu, Deloitte og Ríkisskattstjóra. Guðjón hefur lokið B.Sc.-gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum á Bifröst og
M.Sc.-gráðu í fjármálum fyrirtækja frá Háskóla Íslands.


Fundurinn verður haldinn rafrænt. Óski félagsmenn sérstaklega eftir því að fundurinn verði haldinn með staðfundarfyrirkomulagi er þeim bent á að koma þeirri ósk á framfæri hið fyrsta við stjórn félagsins.

Fundartími: 10. desember kl. 16:00
Fundarform: Rafrænn fundur

Teams hlekkur á fundinn verður sendur þegar nær dregur.

Stjórn FIE

Næstu viðburðir