Þakkir til félagsmanna FIE

Þakkir til ykkar!!!

Kæru félagar

Við í stjórn FIE þökkum ykkur hjartanlega fyrir hve vel Innri Endurskoðunardagur FIE heppnaðist í gær!

Það er óhætt að segja að mæting hafi verið hreint út sagt frábær og lineup-ið af fyrirlesurum var sérlega flott. Bæði fyrirlesarar og efnistök voru af ólíkum toga og áttu það sameiginlegt að eiga sterkt erindi til okkar allra. Það mátti skynja að veislugestir kunnu vel að meta og að við vorum flest í hátíðarskapi!

Við smelltum af nokkrum myndum á viðburðinum og erum að rúlla fyrirlestrunum upp á heimasíðu félagsins, undir "Glærur frá fundum FIE".

Svo er könnun á leiðinni til útsendingar þar sem ykkur verður boðið að koma á framfæri skoðunum ykkar um viðburði félagsins o.fl. Við erum þakklát fyrir hvert það svar sem okkur berst til baka úr könnuninni, því við viljum auðvitað fá staðfestingu á því sem vel er gert og ekki síður að fá tækifærið til að geta gert enn betur. Þannig að fyrirfram "Takk" fyrir að taka þátt í könnuninni!

Að endingu þá erum við búin að ákveða dagsetningu fyrir Aðalfundinn okkar. Það er auðvelt að leggja bæði dagsetningu og staðsetningu á minnið því við erum að tala um 5. maí nk. (fimmti fimmti!) og staðsetningin er sú sama stað og í fyrra, Grand Hotel við Sigtún. Við hlökkum til að hitta ykkur þar aftur!!

Sala á miðum á Innri endurskoðunardag FIE 2026 er hafin

Innri endurskoðunardagur FIE 2026 verður haldinn hátíðlegur fimmtudaginn 19. mars að Sjálandi í Garðabæ. Viðburðurinn hefst kl. 13 og stendur til kl. 17.

Lögð er áhersla á að efnistök endurspegli helstu áherslur sem fagheimur innri endurskoðunar horfir til í dag og þær áskoranir sem smærri einingar standa einkum frammi fyrir.

Fyrirlesarar eru úr efri hillunum og eru eftirfarandi:

1: Ann Brook BSc. (Hons.) - CFCIIA, CIA, QIAL, PGCert (Res), FHEA, CBTS
Member International Internal Audit Standars Board at the IIA UK

2: Sóley Kaldal - Áhættustýringar- og öryggisverkfræðingur
Sérfræðingur í innri endurskoðun Landsbankans og fyrrum aðalsamningamaður alþjóðasamninga hjá Stjórnarráðinu

3: Helga Hlín Hákonardóttir - héraðsdómslögmaður og sérfræðingur í stjórnarháttum
Eigandi og ráðgjafi Strategíu

4: Þórir Ralston - CIA, MACC, tölvunarfræðingur og viðskiptafræðingur
Sérfræðingur í innri endurskoðun Íslandsbanka

Dagskrá viðburðarins samanstendur að þessu sinni af eftirfarandi erindum:

Miðar á viðburðinn eru til sölu hér
CPE einingar fyrir viðburðinn eru 3

LT FME 3/2008 og 2/2011 felld úr gildi

LT FME 3/2008 og 2/2011 felld úr gildi

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur fellt úr gildi Leiðbeinandi tilmæli nr. 3/2008 um endurskoðunardeildir fjármálafyrirtækja og leiðbeinandi tilmæli nr. 2/2011 um undanþágu frá starfrækslu innri endurskoðunardeildar hjá fjármálafyrirtæki.

Í stað þeirra er vísað til 16. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Nánar er fjallað um innri endurskoðun fjármálafyrirtækja og þau viðmið sem hún ætti að fylgja í 5. þætti viðmiðunarreglna EBA um innri stjórnarhætti fjármálafyrirtækja (EBA/GL/2021/05). Þar kemur meðal annars fram að innri
endurskoðun fjármálafyrirtækja ætti að fylgja innlendum og alþjóðlegum fagstöðlum og
er vísað til staðla sem settir eru af alþjóðasamtökum innri endurskoðenda (e. Institute of
Internal Auditors, IIA). Sjá nánar á heimasíðu Seðlabankans.

Þegar innri endurskoðun er útvistað skal taka mið af viðmiðunarreglum EBA um
fyrirkomulag útvistunar (EBA/GL/2019/02). Frekari upplýsingar um kröfur um innri
endurskoðun fjármálafyrirtækja ásamt því hvernig sækja skuli um undanþágu frá
starfrækslu endurskoðunardeildar má finna á heimasíðu Seðlabankans.
Niðurfelling leiðbeinandi tilmælanna er liður í einföldun á regluverki og framkvæmd
fjármálaeftirlits. Niðurfelling tilmælanna felur þó ekki í sér að dregið sé úr kröfum um innri
endurskoðun fjármálafyrirtækja.

Dreifibréf þetta verður birt á heimasíðu Seðlabankans.

Jólakveðja frá stjórn FIE

Stjórn FIE sendir félagsfólki sínu og landsmönnum öllum hugheilar jólakveðjur með bestu óskum um farsæld og hamingju á komandi ári með þökkum fyrir hittingana okkar, samtöl og samstarf. Við erum þegar farin að hlakka til verkefna og viðburða á næstu misserum.

Hlökkum til að hitta ykkur á nýju ári.

Jólakveðja,
Björg Ýr, Ásta, Gréta, Gunnar, Hanna Soffía og Viðar

Formaður FIE heimsótti höfuðstöðar IIA

Formaður FIE heimsótti nú á dögunum höfuðstöðvar IIA í Lake Mary í Bandaríkjunum. Heimsókn sem þessi er mikilvægur liður í gæðaumgjörð og áherslum félagsins, til að vera sýnileg og styrkja tengslin við þá sérfræðinga í IIA HQ sem við erum í samskiptum við í okkar innra starfi.

Tekið var vel á móti Björgu og fékk hún kynningu þeirri góðu starfsemi sem fer fram þar. Að auki skipulagning á árlegum viðburðum eins og ráðstefnum og námsefni og stuðningur við félög um allan heim. Þá eru ýmis verkefni framundan hjá þeim m.a. breytingar á utanumhaldi endurmenntunareininga og útgáfa ítarefna við staðalinn.

Framundan er svo að fínstilla gæðaumgjörð og áherslur FIE á Íslandi við þær sem Björgu voru kynntar í IIA HQ.

Næstu viðburðir