Siðfræði hefur frá upphafi verið ein af grunnstoðum endurskoðunar. Hlutverk endurskoðandans byggist á heilindum, óhæði, hlutlægni, faglegri dómgreind og þeirri ábyrgð sem fylgir því að leggja sjálfstætt mat á upplýsingar og miðla niðurstöðum til þeirra sem á þær treysta. En hvernig hafa hugmyndir um stjórnarhætti og siðferðilega ábyrgð endurskoðenda þróast í gegnum tíðina? Hvaða lærdóm má draga af sögu endurskoðunar, fjármálahneykslum og breytingum á væntingum samfélagsins? Og hvernig reynir ný tækni, ekki síst gervigreind, á hefðbundnar siðferðilegar meginreglur?
Fjallað um siðfræði endurskoðandans í sögulegu og samtímalegu samhengi. Rakin verður þróun faglegra siðareglna og fjallað um tengsl þeirra við faglega dómgreind, sjálfstæði, ábyrgð og almannahagsmuni. Sérstök áhersla verður lögð á að skoða hvort nýjar áskoranir kalli á nýjar siðferðilegar meginreglur eða fyrst og fremst dýpri skilning á þeim grundvallarviðmiðum sem endurskoðunarstarfið hefur lengi byggst á. Fyrirlestur, dæmi úr sögu endurskoðunar og umræður um siðferðileg álitaefni.
Fyrirlesari: Sigurjón Geirsson Lengd: 2 klukkustundir
2 endurmenntunarstundir á sviði siðareglna og faglegra gilda
Staðsetning: Staðsetning auglýst þegar nær dregur og upplýsingar sendar á skráða þátttakendur
Alvarlegir öryggisveikleikar í PHP voru tilkynntir í gær og vöktu alþjóðlega athygli. PHP er eitt útbreiddasta forritunarmál vefkerfa og er notað á um 69 af hverjum 100 vefsíðum þar sem vitað er hvaða tækni liggur að baki. Afleiðingar atburðarins eiga eftir að koma betur í ljós, en hann minnir okkur óþægilega á hve tæknilegur veikleiki getur á örskotsstundu orðið að alvarlegri áhættu með víðtækum afleiðingum.
Atburðurinn undirstrikar að netöryggi snýst ekki aðeins um tæknilegar varnir heldur einnig um stjórnarhætti, áhættustýringu og skýra ábyrgð. Alþjóðasamtök innri endurskoðenda (IIA) leggja í nýjum kröfum sínum um netöryggi aukna áherslu á hlutverk innri endurskoðunar við mat á stjórnun netöryggisáhættu og virkni eftirlits. Þetta rímar jafnframt við niðurstöður alþjóðlegu Risk in Focus-könnunarinnar, sem fjallað var um í síðasta fréttabréfi FIE.
Svo ótrúlega vill til að Fjarskiptastofa heldur í næstu viku ráðstefnuna "Netöryggi og seigla samfélagsins - á tímum stafrænna ógna" og verður haldinn nk. þriðjudag. Ráðstefnan var að sjálfsögðu skipulögð með góðum fyrirvara (svo það sé tekið fram), en tímasetningin gefur umræðunni sérstakt vægi í ljósi atburða gærdagsins. Meðal fyrirlesara eru fulltrúar frá NATO, sænsku netöryggismiðstöðinni NCSC-SE, fjarskiptayfirvöldum á Grænlandi auk sérfræðinga frá Fjarskiptastofu, Landsneti og Syndis.
Svona atburðarrás verður ekki skálduð en þessi tímalína er hér einstakt tækifæri til lærdóms. Grunur leikur á að PHP uppákoman komi til tals, enda nánast lygasaga að svona stór atburður hafi átt sér stað, rétt í aðdraganga Netöryggisráðstefnunnar.
FIE bendir því á hið einstaka lærdómstækifæri sem hér gefst til að fræðast, hér frá öðru sjónarhorni, um helstu áhættu á vettvangi innri endurskoðenda í dag, um PHP atburðinn og þann lærdóm sem má draga af honum þegar umfang hans og afleiðingar liggja betur fyrir.
Arion banki hf. býður félagsfólki FIE heim í morgunverðarfund sem haldinn verður miðvikudaginn 30. september kl. 8.30.
Dagskráin stendur til kl. 10.00 og er svohljóðandi:
Netöryggi á gervigreindartímum – Stefán Skúlason öryggissérfræðingur, Arion banka
Lærdómur eftir 2026 Financial Service Exchange ráðstefnuna – Anna Sif Jónsdóttir innri endurskoðandi Arion banka
Reynsla stjórnenda af því að vinna með innri endurskoðun - Jón Finnbogason, framkvæmdastjóri Stefnis
Þessi morgunverðarfundur er fyrsti viðburður vetrarins og því alltaf spennandi að hittast að nýju og bera saman bækur sínar og helstu áherslur. Að fenginni reynslu er mikið skrafað og spjallað um málefni innri endurskoðunar, enda hluti af viðburðunum okkar að við miðlum þekkingu og áherslum á faglegu nótunum hvert til annars. Ekki síður til að hefja samtal við félaga okkar sem eru að stíga inn á þessa senu okkar. Við hvetjum félagsfólk okkar því eindregið til að ráðstafa tíma í slíkt uppbyggilegt og áhugavert spjall að fyrirlestrunum afstöðnum.
Við hlökkum til að hitta ykkur!!
Arion banki, Borgartúni 19, 105 Reykjavík Miðvikudagur 30. september 2026 Kl. 8:30 - 10:00 CPE: 1,5
Risk in Focus er árleg könnun sem tekur til helstu áhættuþátta sem skipulagsheildir í Evrópu standa frammi fyrir. Könnunin er nú framkvæmd í ellefta sinn og veitir innri endurskoðendum, endurskoðunarnefndum og stjórnum mikilvæga innsýn í hvernig áhættuumhverfið er að þróast sem og áherslur yfirmanna innri endurskoðunar í Evrópu í takt við það.
Risk in Focus 2027 greinir síbreytilegt áhættuumhverfi þar sem áhættuþættir verða sífellt samtengdari. Netöryggi er áfram stærsti áhættuþátturinn, en stafræn umbreyting, ný tækni og gervigreind, ásamt efnahagslegri og pólitískri óvissu, fylgja þar á eftir. Niðurstöðurnar varpa ljósi á hvernig hraðar tæknibreytingar, pólitísk óvissa og flóknara regluverk eru farnar að vera áskorun við hefðbundna nálgun og mat á stjórnarháttum, áhættustýringu og áætlanagerð í innri endurskoðun.
Skýrslan fjallar jafnframt um hvernig innri endurskoðunareiningar bregðast við breyttu áhættuumhverfi, meðal annars með sveigjanlegri áætlun innri endurskoðunar, aukinni samhæfingu og samstarfi og með því að styðja stjórnir við að efla framsýna stjórnarhætti.
Helstu niðurstöður
1. Stafræn umbreyting, ný tækni og gervigreind færðust úr þriðja sæti í annað sæti. 52% yfirmanna innri endurskoðunar töldu þennan áhættuþátt meðal fimm stærstu áhættuþátta. Stjórnarhættir, áhættustýring og eftirlitsferlar virðast þó ekki þróast í takt við þann hraða sem nýsköpun er á, á sviði gervigreindar, sem getur skapað blindsvæði í áhættustýringu.
2. Netöryggi og gagnaöryggi eru áfram hæst metnu áhættuþættirnir, en 86% yfirmanna innri endurskoðunar töldu þau meðal fimm stærstu áhættuþátta. Sífellt flóknari netárásir, ógnir tengdar gervigreind, veikleikar í aðfangakeðjum og pólitísk áhætta stuðla að áframhaldandi áhættu.
3. Efnahagsleg og pólitísk óvissa færðist upp í þriðja sæti, en þroski áhættustýringar og umfang innri endurskoðunar á þessu sviði er áfram tiltölulega lítið. Niðurstöðurnar benda til þess að skipulagsheildir þurfi að styrkja stjórnarhætti, viðnámsþrótt og getu til upplýstrar ákvarðanatöku til að bregðast við síbreytilegu ytra umhverfi.
Yfirlit fyrir stjórnir dregur saman helstu niðurstöður skýrslunnar fyrir stjórnir og yfirstjórn.
Eftir því sem áhættuþættir verða sífellt samtengdari þurfa stjórnir að beita sveigjanlegri og framsýnni yfirumsjón. Innri endurskoðunareiningar gegna þar mikilvægu hlutverki, ekki aðeins með staðfestingarþjónustu, heldur einnig með því að veita innsýn og faglegt mat á stefnumótandi viðfangsefnum á borð við innleiðingu gervigreindar, viðnámsþrótt gagnvart netógnum og efnahagslega og pólitíska óvissu.
Yfirlitið dregur fram helstu áherslur, nýjar og vaxandi áhættur og atriði er varða stjórnarhætti sem stjórnir og yfirstjórn þurfa að hafa í huga á komandi ári.
Innri endurskoðunardagur FIE 2026 verður haldinn hátíðlegur fimmtudaginn 19. mars að Sjálandi í Garðabæ. Viðburðurinn hefst kl. 13 og stendur til kl. 17.
Lögð er áhersla á að efnistök endurspegli helstu áherslur sem fagheimur innri endurskoðunar horfir til í dag og þær áskoranir sem smærri einingar standa einkum frammi fyrir.
Fyrirlesarar eru úr efri hillunum og eru eftirfarandi:
1: Ann Brook BSc. (Hons.) - CFCIIA, CIA, QIAL, PGCert (Res), FHEA, CBTS Member International Internal Audit Standars Board at the IIA UK
2: Sóley Kaldal - Áhættustýringar- og öryggisverkfræðingur Sérfræðingur í innri endurskoðun Landsbankans og fyrrum aðalsamningamaður alþjóðasamninga hjá Stjórnarráðinu
3: Helga Hlín Hákonardóttir - héraðsdómslögmaður og sérfræðingur í stjórnarháttum Eigandi og ráðgjafi Strategíu
4: Þórir Ralston - CIA, MACC, tölvunarfræðingur og viðskiptafræðingur Sérfræðingur í innri endurskoðun Íslandsbanka
Dagskrá viðburðarins samanstendur að þessu sinni af eftirfarandi erindum:
Miðar á viðburðinn eru til sölu hér CPE einingar fyrir viðburðinn eru 3