LT FME 3/2008 og 2/2011 felld úr gildi

LT FME 3/2008 og 2/2011 felld úr gildi

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur fellt úr gildi Leiðbeinandi tilmæli nr. 3/2008 um endurskoðunardeildir fjármálafyrirtækja og leiðbeinandi tilmæli nr. 2/2011 um undanþágu frá starfrækslu innri endurskoðunardeildar hjá fjármálafyrirtæki.

Í stað þeirra er vísað til 16. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Nánar er fjallað um innri endurskoðun fjármálafyrirtækja og þau viðmið sem hún ætti að fylgja í 5. þætti viðmiðunarreglna EBA um innri stjórnarhætti fjármálafyrirtækja (EBA/GL/2021/05). Þar kemur meðal annars fram að innri
endurskoðun fjármálafyrirtækja ætti að fylgja innlendum og alþjóðlegum fagstöðlum og
er vísað til staðla sem settir eru af alþjóðasamtökum innri endurskoðenda (e. Institute of
Internal Auditors, IIA). Sjá nánar á heimasíðu Seðlabankans.

Þegar innri endurskoðun er útvistað skal taka mið af viðmiðunarreglum EBA um
fyrirkomulag útvistunar (EBA/GL/2019/02). Frekari upplýsingar um kröfur um innri
endurskoðun fjármálafyrirtækja ásamt því hvernig sækja skuli um undanþágu frá
starfrækslu endurskoðunardeildar má finna á heimasíðu Seðlabankans.
Niðurfelling leiðbeinandi tilmælanna er liður í einföldun á regluverki og framkvæmd
fjármálaeftirlits. Niðurfelling tilmælanna felur þó ekki í sér að dregið sé úr kröfum um innri
endurskoðun fjármálafyrirtækja.

Dreifibréf þetta verður birt á heimasíðu Seðlabankans.

Formaður FIE heimsótti höfuðstöðar IIA

Formaður FIE heimsótti nú á dögunum höfuðstöðvar IIA í Lake Mary í Bandaríkjunum. Heimsókn sem þessi er mikilvægur liður í gæðaumgjörð og áherslum félagsins, til að vera sýnileg og styrkja tengslin við þá sérfræðinga í IIA HQ sem við erum í samskiptum við í okkar innra starfi.

Tekið var vel á móti Björgu og fékk hún kynningu þeirri góðu starfsemi sem fer fram þar. Að auki skipulagning á árlegum viðburðum eins og ráðstefnum og námsefni og stuðningur við félög um allan heim. Þá eru ýmis verkefni framundan hjá þeim m.a. breytingar á utanumhaldi endurmenntunareininga og útgáfa ítarefna við staðalinn.

Framundan er svo að fínstilla gæðaumgjörð og áherslur FIE á Íslandi við þær sem Björgu voru kynntar í IIA HQ.

Uppfærðir staðlar tóku gildi 1. janúar 2017

Alþjóðlegir staðlar um innri endurskoðun hafa verið uppfærðir og tók ný útgáfa gildi frá og með 1. janúar 2017.

Í inngangi að stöðlunum segir meðal annars að tilgangur þeirra sé að:

  1. Leiðbeina um það hvernig framfylgja má ófrávíkjanlegum hluta alþjóðlegs ramma um innri endurskoðun.
  2. Skapa umgjörð til að framkvæma og efla margvíslega virðisaukandi innri endurskoðunarþjónustu.
  3. Skapa grundvöll fyrir mat á frammistöðu innri endurskoðunar.
  4. Stuðla að endurbótum á ferlum og rekstri fyrirtækja.

Samkvæmni við alþjóðlega staðla um innri endurskoðun er mikilvægur til að tryggja að faglega sé staðið að framkvæmd hennar.

Félagsmenn og aðrir hagsmunaaðilar eru hvattir til að kynna sér nýja útgáfu staðlanna, sem er aðgengileg á heimasíðu Alþjóðasamtaka innri endurskoðenda (The Institute of Internal Auditors): Sjá hér

 

Næstu viðburðir