- This event has passed.
Aðalfundur
27. maí, 2020-14:00 - 15:00
Kæri félagsmaður.
Félag um innri endurskoðun boðar til aðalfundar miðvikudaginn 27. maí 2020 kl. 14-15.
Fundurinn verður að þessu sinni haldinn í fjarfundabúnaði en honum er stýrt úr húsnæði Kviku banka, Katrínartúni 2, 105 Reykjavík. Hlekkurinn inn á fjarfundinn verður sendur á skráð netföng félagsmanna í félagaskrá.
Dagskrá aðalfundar:
1. Skýrsla um störf félagsins á liðnu ári.
2. Reikningar félagsins lagðir fram til samþykktar.
3. Breytingar á samþykktum.
4. Kosning stjórnarmanna.
5. Kosning formanna nefnda skv. 7 gr.
6. Kosning skoðunarmanns annað hvert ár.
7. Ákvörðun félagsgjalds.
8. Önnur mál.
Stjórnin minnir á að allir geta boðið sig fram til stjórnarsetu og hvetur félagsmenn til að gefa kost á sér til starfa í nefndum og faghópum á vegum félagsins. Áhugasamir félagsmenn geta haft samband við stjórn félagsins.
Stjórn FIE