
Morgunverðarfundur 17. nóvember nk.
Þá er komið að næsta morgunverðarfundi FIE. Fyrirtæki og stofnanir sem starfrækja innri endurskoðun hafa í auknum mæli opnað dyr sínar fyrir þessum viðburði. Slíkt þéttir auðvitað tengslanetið okkar auk þess hve gaman það er að bjóða heim og fá svo heimboðið á ólíkar starfsstöðvar okkar. Stjórn FIE þakkar kærlega góðar móttökur hjá þeim aðilum sem nýverið hafa boðið heim og hvetur til þess að sem flestir taki áfram vel í þetta fyrirkomulag.
Að þessu sinni er það Kvika banki sem opnar dyr sínar fyrir morgunverðarfund FIE sem haldinn verður þriðjudaginn 17. nóvember kl. 8.30 í höfuðstöðvum bankans að Katrínartúni 2.
Þema fundarins eru stjórnarhættir. Þeir eru umlykjandi í flestum okkar verkefnum og leika sífellt stærra hlutverk í allri rekstrarumgjörð og tengjast við aðrar áhættur með enn skýrari hætti en áður (DORA, NIS2, EBA GL). Þá voru Leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja uppfærðar í október sl. og haldinn fjölmennur útgáfuviðburður af því tilefni að Hótel Reykjavík Grand. Þar kynnti Lísbet Sigurðardóttir, lögfræðingur Viðskiptaráðs og verkefnastjóri útgáfunnar, helstu breytingar á leiðbeiningunum auk þess sem Rut Gunnarsdóttir, verkefnastjóri hjá KPMG, tók þátt í líflegum pallborðsumræðum.
Viðburðurinn var sérlega vel heppnaður. Svo mjög að ákveðið var að bjóða þeim á næsta morgunverðarfund FIE þar sem þær munu breiða út fagnaðarerindið og gefa félagsfólki okkar kost á að umræðuvettvangi við þær um stjórnarhætti. Þær hafa þekkst boð okkar og staðfest mætingu. Þetta verður kjörinn vettvangur til að leggja við hlustir og miðla okkar eigin áherslum eða áskorunum.
Við hvetjum ykkur eindregið til að taka þátt í þessum viðburði, taka þátt í umræðunni og bera upp þær spurningar sem brenna á ykkur (og mjög líklega fleiri eru að velta fyrir sér!!).
Við hlökkum til að hitta ykkur!!
Kvika banki hf.
Katrínartúni 2, 105 Reykjavík
Þriðjudagur 17. nóvember 2026
Kl. 8:30 - 10:00
CPE: 1,5
Veitingar í boði
Frír viðburður
Skráning fer fram hér:

