- This event has passed.
Morgunverðarfundur 20. nóvember 2019
20. nóvember, 2019-08:00 - 10:00
Virðisaukandi aðferðir í innri endurskoðun
The Internal Audit Ambition Model (IIA) / Agile hugmyndafræði
Morgunverðarfundur Félags um innri endurskoðun
Grand hótel Reykjavík - Gallerí
Miðvikudaginn 20. nóvember kl. 8:00-10:00
Hvernig geta innri endurskoðendur þróað sína nálgun og aðferðafræði til að skila sýnilegu virði, í heimi óvissu og sífellt hraðari breytinga? Erindi dagsins eru um The Internal Audit Ambition Model frá IIA og Agile hugmyndafræðina, sem leið til að hjálpa fyrirtækjum að finna nýjar leiðir til að takast á við breytt umhverfi.
Ingunn Ólafsdóttir innri endurskoðandi Háskóla Íslands, og formaður Félags um innri endurskoðun fjallar um The Internal Audit Ambition Model frá IIA.
Kristrún Anna Konráðsdóttir, verkefnaráðgjafi hjá VÍS, hefur ástríðu fyrir því að hjálpa fólki og fyrirtækjum að finna nýjar leiðir til að takast á við breytt umhverfi. Hún nýtir Agile hugmyndafræði til að spegla áskoranir og svara krefjandi spurningum.
Verð: 5.500 kr. fyrir félagsmenn og kr. 6.500 fyrir utanfélagsmenn. Innifalinn morgunverður og kaffi.
Tvær endurmenntunareiningar í endurskoðunarflokki.
Skráning er með tölvupósti á fie@fie.is, fyrir kl.12 þann 18. nóvember