Þórarinn Ólason hlýtur CIA fagvottun

Þórarinn Ólason hlaut CIA vottun hjá Alþjóðasamtökum innri endurskoðenda núna í júlí 2026  eftir að hann lauk CIA Challenge Exam. Fyrir er Þórarinn með CISA vottun frá ISACA auk M.Acc. gráðu frá HÍ og B.Sc. í Viðskiptafræði frá Háskólanum á Bifröst.

Þórarinn hefur frá árinu 2019 starfað sem sérfræðingur í endurskoðun upplýsingatækni við innri endurskoðun Arion banka. Áður vann hann hjá EY við endurskoðun, ráðgjöf og innri endurskoðun.

Stjórn FIE óskar Þórarni innilega til hamingju með vottunina.

Rafræn ERM ráðstefna 2026

2026 Enterprise Risk Management Virtual Conference

Látið ekki rafræna ráðstefnu um áhættustjórnun fyrirtækja 2026 fram hjá ykkur fara! Ráðstefna fyrir innri endurskoðendur, stjórnendur og starfsfólk í áhættustýringu og regluvörslu. Á ráðstefnunni verður sjónum beint að helstu áhættuþáttum sem fyrirtæki og stofnanir standa frammi fyrir og hvernig best er fyrir innri endurskoðun að beita sér í síbreytilegu áhættulandslagi. Meðal umfjöllunarefnis er netöryggi, skýjaáhætta, áhætta í aðfangakeðju, gervigreind, breytingar á vinnumarkaði, EST og loftlagsáhætta, auk viðbúnaðar vegna óvæntra og umfangsmikilla atvika.

Þátttakendur fá hagnýta innsýn, raunhæf dæmi og aðferðir sem nýtast við framkvæmd áhættumats, gerð endurskoðunaráætlunar og stefnumótandi ráðgjöf, með hliðsjón af þriggja línu líkani IIA.

Ráðstefnan fer fram 8. september 2026 frá kl. 13:00 - 21.00 að íslenskum tíma (9:00 a.m. - 5:00 p.m. ET).

Þátttakendur geta unnið sér inn 8,4 CPE-einingar.

Skráning fer fram á vefsíðu IA.

Verð er USD 499.

Aðgangur að endurspilun á upptökum í eitt ár fylgir kaupunum.