Mánuður innri endurskoðunar

Eflið skipulagseininguna. Aukið traust. Bætið árangur.  Það eru áhrif innri endurskoðunar.

Innri endurskoðun kemur á skilvirkri nálgun við að meta og bæta stjórnarhætti, áhættustýringu og eftirlitsferla. Innri endurskoðun styrkir skipulagseininguna innan frá.

Viljið vita hvernig innri endurskoðun eykur virði þvert á atvinnugreinar? Sjáið nánar á  www.theiia.org  www.fie.is

#OneIIA  #InternalAuditMonth

Sparið 25% í maí

Meðlimir IIA geta í maí sparað 25% í umsóknar- og skráningargjöldum í Certified Internal Auditor® (CIA®) ​​eða Certification in Risk Management Assurance® (CRMA®). Nýtið tækifærið og bætið liðstyrkinn með þessu góða tilboði.

Sjá nánar hér

Aðalfundur Félags um innri endurskoðun

Stjórn FIE boðar til aðalfundar þriðjudaginn 13. maí 2025 kl. 16:30 í salnum Gallerí á Grand hótel, Sigtúni 28, Reykjavík.

Dagskrá aðalfundar

  1. Skýrsla um störf félagsins á liðnu ári
  2. Reikningar félagsins lagðir fram til samþykktar
  3. Breytingar á samþykktum
  4. Kosning stjórnarmanna
  5. Kosning skoðunarmanns
  6. Ákvörðun félagsgjalds
  7. Önnur mál

Breytingar á samþykktum

Lagt er til að 1. mgr. 5. gr. samþykkta félagsins verði breytt þannig:

Samþykkt hljóðar þannig í dag:

Aðalfundur hefur æðsta vald í málefnum félagsins. Aðalfund skal boða skriflega með bréfi eða tölvupósti með 14 daga fyrirvara hið skemmsta. Aðalfundur er lögmætur sé löglega til hans boðað og ræður afl atkvæða úrslitum mála nema annars sé getið í samþykktum þessum.

Samþykkt eftir breytingu (skáletraður texti afmarkar breytingu):

Aðalfundur hefur æðsta vald í málefnum félagsins. Aðalfund skal boða með tilkynningu á vefsíðu félagsins eða tölvupósti með 14 daga fyrirvara hið skemmsta. Aðalfundur er lögmætur sé löglega til hans boðað og ræður afl atkvæða úrslitum mála nema annars sé getið í samþykktum þessum.

Nýr fagvottaður innri endurskoðandi – CIA

Hugrún Sif Harðardóttir hlaut CIA fagvottun hjá Alþjóðasamtökum innri endurskoðenda í desember sl. þegar hún lauk CIA Challenge Exam en Hugrún hlaut CISA fagvottun árið 2022. Stjórnin hvetur aðra félagsmenn sem hafa CISA fagvottun að kynna sér CIA Challenge Exam.

Hugrún Sif hefur verið forstöðumaður innri endurskoðunar Kviku banka frá mars 2024 en hún hóf störf í innri endurskoðun hjá Kviku banka árið 2023. Þar áður starfaði hún sem sérfræðingur í innri endurskoðun hjá Landsbankanum með áherslu á upplýsingatækni og rekstraráhættu og þar á undan sem sérfræðingur hjá Arion banka með áherslu á rekstraráhættu og straumlínustjórnun. Auk þess að hefur hún starfað við gæða- og öryggismál hjá Teris og ANZA.

Hugrún Sif lauk M.Sc. Analysis, Design and Management of Information Systems frá The London School of Economics and Political Sciences (LSE) í London árið 2005 og Bsc. Viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2002.

Aðalfundur FIE

Kæri félagsmaður
Félag um innri endurskoðun boðar til aðalfundar fimmtudaginn 8. maí 2025, kl. 16:30.

Aðalfundurinn verður haldinn á Grand hótel og verða léttar veitingar í boði.

Hefðbundin dagskrá aðalfundar verður einnig tilkynnt síðar.

Stjórnin hvetur félagsmenn til að taka þátt í starfi félagsins. Tveir stjórnarmenn munu láta af störfum á næsta aðalfundi. Áhugasamir geta haft samband við stjórn félagsins en einnig er hægt að bjóða sig fram til stjórnarsetu á fundinum.

Sjáumst á aðalfundinum!
Stjórn FIE

Næstu viðburðir

WP2Social Auto Publish Powered By : XYZScripts.com