Fræðsludagskrá haustsins 2025

Kæru félagsmenn,

Í haust verður boðið upp á fjölbreytta og metnaðarfulla fræðslu. Námskeiðin fara fram á netinu, nema annað sé tekið fram, og eru kennd af reynslumiklum sérfræðingum á sviði innri endurskoðunar, áhættustýringar og stjórnarhátta.

17. september 2025 kl. 16:00 – Á netinu
Beyond Compliance: Driving Impactful Change as Public Sector Internal Auditorsmeð Harriet Richardson, Pamela J. Stroebel Powers og Sharon Clark

23. september 2025 kl. 09:00 – Á netinu
Radical reporting – með Sara I James

7.–8. október 2025 – Í Osló
2-Day Advanced Operational Risk Workshop – með Elena Pykhova

8. október 2025 – Í Arion banka
Fræðsluviðburður

13. október 2025 – Á netinu
Master the Art of Strategic Influence: Political Savvy for Internal Audit Leaders – með James Paterson

14. október 2025 – Á netinu
Working with other assurance providers, coordination and effective assurance mapping – með John Chesshire

15.–16. október 2025 (4 klst. báða dagana) – Á netinu
An introduction to artificial intelligence for internal auditors, Level 1 – með Stephen Foster

20.–21. október 2025 – Á netinu
Mastering Integrated GRC Frameworks – með James Paterson

23. október 2025 (4 klst.) – Á netinu
AI for IA Beyond the Basics, Level 2 – með Stephen Foster

17. nóvember 2025 – Á netinu
Looking at Audit Ratings and Opinions for Today’s High-Stakes Environment – með James Paterson

20. nóvember 2025 – Á netinu
Strategic Audit Planning: Mastering Best Practices reflecting the new GIAS – með James Paterson

24. nóvember 2025 – Á netinu
Developing an effective Quality Assurance and Improvement Program (QAIP) and getting the most from an External Quality Assessment (EQA) – með John Chesshire

Nánari upplýsingar um öll námskeiðin má finna með því að smella á hlekkina hér að ofan.

Við hvetjum félagsmenn til að nýta tækifærið til að sækja sér fróðleik og efla faglega hæfni sína.

ℹ️ Skráningar- og greiðsluhlekkur verður auglýstur sérstaklega síðar. Félagsmenn fá jafnframt sérstakan afsláttarkóða fyrir námskeiðin.

Íslenskt nám á háskólastigi í innra eftirliti

Kæru félagar!! Það er nú ekki á hverjum degi sem sem nám á háskólastigi í innra eftirliti - innri endurskoðun og regluvörslu býðst hér á landi. Það er hins vegar að gerast þessi misserin!!!

Bifröst University býður nú í haust upp á örnám á sviði innri endurskoðunar og regluvörslu. Reynsluboltarnir Sif Einarsdottir og Rut Gunnarsdottir eru kennarar í þessu námi en þær eru hvor um sig með reynslumeiri sérfræðingum í sínu fagi hér á landi. Það kemur enginn að tómum kofanum þegar þær eru annars vegar.

Fyrir þá sem spyrja sig "hvað er örnám?" þá er hægt að skoða það hér Örnám - Háskólinn á Bifröst

FIE fagnar þessu framtaki auðvitað heilshugar og hvetur félaga í faginu (og vitanlega aðra faglega forvitna) til að kíkja á það hlaðborð þekkingar sem hér er boðið upp á Innra eftirlit - innri endurskoðun og regluvarsla - Háskólinn á Bifröst!!

Kveðja, stjórn FIE

Sýndarhlekkur á IIA global 2025 í Kanada

Kæru félagar

Alþjóðleg ráðstefna IIA verður haldin í Toronto 14. – 16. júlí nk. og spennan magnast. Hlekkur á ráðstefnuna er hér.

Alþjóðasamtökin hafa vakið athygli okkar á því að nú er hægt að sækja ráðstefnuna án þess þó að mæta í eigin persónu.

Samtökin kynna til sviðs "The Main Stage Virtual Pass" (Aðalsýndarpassann!). Passinn er hagkvæm og sveigjanleg leið til að upplifa hugmyndafræði þeirra leiðtoga sem stíga á svið á ráðstefnunni án fyrirhafnarinnar eða kostnaðar við að mæta á staðinn.

Þessi nýja skráningarleið á ráðstefnuna veitir aðgang að öllum fyrirlestrum fyrir aðeins 499 $, ýmist í streymi eða við hentugleik, í allt að 30 daga. Passinn er tilvalinn fyrir þá meðlimi sem eiga síður heimangengt á ráðstefnuna sökum kostnaðar, anna eða af öðrum ástæðum. Sýndarmæting á ráðstefnuna aflar ráðstefnugestinum 6,8 CPE eininga, rétt eins og með því að mæta í raunheimum.

Hlekkurinn á Aðalpassann! er svo hér.

Hafið endilega samband ef það vakna einhverjar spurningar eða ef þið eigið í vandræðum með skráningu.

Morgunverðarfundur 22. maí 2025

Morgunverðarfundur FIE á Hótel Reykjavík Natura þann 22. maí 2025

Dagskrá morgunverðarfundar:

  • Innri endurskoðun, fyrstu skrefin. Björg Ýr Jóhannsdóttir, sérfræðingur í innri endurskoðun Íslandsbanka, fer yfir praktísk atriði sem miðast við fólk sem nýlega hefur hafið störf sem innri endurskoðandi.
  • Efst á baugi í innri endurskoðun á sjálfbærni. Margrét Helga Guðmundsdóttir, verkefnastjóri í sjálfbærniráðgjöf Deloitte, fer yfir nýlegar breytingar regluverks á sviði sjálfbærni.
  • Íslenskunotkun innri endurskoðenda. Þorkell Guðmundsson, sérfræðingur í innri endurskoðun Kviku banka, fer yfir mikilvægi metnaðar í íslensku ritmáli og að hafa gaman af því að nota okkar fallega tungumál.

Hótel Reykjavík Natura, Nauthólsvegur 52 , 101 Reykjavík
Fimmtudaginn 22. maí 2025
Kl. 8:15 - 10:00
CPE: 2

Verð: 1.500 kr. fyrir félagsmenn FIE

Léttar morgunveitingar í boði.

Skráning hér.

Mánuður innri endurskoðunar

Eflið skipulagseininguna. Aukið traust. Bætið árangur.  Það eru áhrif innri endurskoðunar.

Innri endurskoðun kemur á skilvirkri nálgun við að meta og bæta stjórnarhætti, áhættustýringu og eftirlitsferla. Innri endurskoðun styrkir skipulagseininguna innan frá.

Viljið vita hvernig innri endurskoðun eykur virði þvert á atvinnugreinar? Sjáið nánar á  www.theiia.org  www.fie.is

#OneIIA  #InternalAuditMonth

Vefnámskeið: Gagnrýnin hugsun 10. júní 2025

IIA Svíþjóð heldur vefnámskeiðið 'Critical thinking' þann 10. júní 2025.

IIA Svíþjóð endurtekur vinsælt námskeið með Söru I. James um gagnrýna hugsun. Oft komast færri að en vilja!

Í dag er gagnrýnin hugsun ein mikilvægasta færni sem innri endurskoðendur þurfa að hafa. Hagnýtt námskeið sem nýtist jafnt innri endurskoðendum, sem og sérfræðingum í áhættustýringu og regluvörslu.

Efnistök námskeiðs

Þátttakendur læra að meta hlutverk gagnrýninnar hugsunar við framkvæmd innri endurskoðunar og á öðrum sviðum staðfestingarvinnu. Gagnrýnin hugsun hjálpar til við að meta gildi gagna til stuðnings niðurstöðu, beita faglegri tortryggni og prófa kenningar til að ná fram traustari og gagnlegri upplýsingum. Um er að ræða gagnvirkt námskeið þar sem notaðar eru dæmisögur og verklegar æfingar til að efla þekkingu og sjálfstraust þátttakenda við að nota þessa færni í störfum sínum.

Að loknu námskeiði munu þátttakendur geta veitt betri áhættumiðaða endurskoðunarþjónustu og ráðgjafaþjónustu með því að:

  • Geta greint, safnað og metið nægilegar og áreiðanlegar upplýsingar;
  • Koma á framfæri sönnunargögnum og rökstuðningi sem leiða til niðurstaðna endurskoðunar; og
  • Aðstoða skipulagsheildina við að bæta eftirlitsþætti byggða á þessum niðurstöðum.

1. Gagnrýnin hugsun: hvað er það?

  • Skilgreiningar
  • Hefðir
  • Tegundir rökhugsunar
  • Hindranir við rökhugsun

2. Hvernig getum við beitt gagnrýninni hugsun á öllum stigum verkefnis?

  • Skipulag og umfang
  • Prófanir, þar á meðal mat á eigindlegum og megindlegum gögnum
  • Greina frávik og miðla alvarleikastigi

3. Gagnrýnin hugsun og fyrirtækjamenning

  • Skipulagsheild og önnur menningarleg áhrif á tegundir rökhugsunar
  • Að bera kennsl á og yfirstíga menningarlegar hindranir

4. Að orða niðurstöður gagnrýninnar hugsunar

  • Að skilja forsendur og nálgun annarra

5. Að miðla niðurstöðum greiningar á hlutlægan hátt

Fyrirlesari: Sara I. James

Með meira en 30 ára reynslu af kennslu, ritun, útgáfustarfsemi og skipulagsheildum í Bandaríkjunum og Evrópu veitir Sara þjálfun í skýrslugerð um allan heim í gegnum fyrirtæki sitt, Getting Words to Work ®. Hún hefur skrifað fjölda greina um tungumál og skýrslugerð og verið fyrirlesari á alþjóðlegum ráðstefnum.

Dagsetning og tími

  • 10. júní, 2025
  • 07:00 - 11:00  

Staðsetning

  • Vefnámskeið, í gegnum Zoom 
  • Hlekkur verður sendur nokkrum dögum fyrir námskeiðið. 

Verð

  • Félagsmenn FIE og FLE: kr. 35.000 (ISK) 
  • Almennt verð: 50.000 (ISK) 

Endurmenntunareiningar (CPE)

  • 4

Skráning fer fram hér.

Nánari upplýsingar um námskeiðið má finna á vefsíðu IIA Svíþjóð.