Þórarinn Ólason hlýtur CIA fagvottun

Þórarinn Ólason hlaut CIA vottun hjá Alþjóðasamtökum innri endurskoðenda núna í júlí 2026  eftir að hann lauk CIA Challenge Exam. Fyrir er Þórarinn með CISA vottun frá ISACA auk M.Acc. gráðu frá HÍ og B.Sc. í Viðskiptafræði frá Háskólanum á Bifröst.

Þórarinn hefur frá árinu 2019 starfað sem sérfræðingur í endurskoðun upplýsingatækni við innri endurskoðun Arion banka. Áður vann hann hjá EY við endurskoðun, ráðgjöf og innri endurskoðun.

Stjórn FIE óskar Þórarni innilega til hamingju með vottunina.

Balema Alou hlýtur CIA fagvottun

Balema Alou hlaut CIA fagvottun Alþjóðasamtakanna núna í mars 2026. Balema er með  meistaragráðu í hagfræði frá  Freiburg háskóla í Breisgau, Þýskalandi. Þá hefur hann einnig lokið löggildingarprófi í verðbréfaviðskiptum á Íslandi. Balema hefur starfað í innri endurskoðun Íslandsbanka síðan í október 2023 en þar áður starfaði hann á fjármálasviði bankans, eða frá árinu 2006.

Við óskum Balema hjartanlega til hamingju með fagvottunina!