RISE Virtual Conference 2026 – Ráðstefna ætluð stjórnendum og leiðtogum í innri endurskoðun

RISE ráðstefnan fer fram á vegum IIA þann 10. júlí 2026 og er ætlað að efla hlutverk innri endurskoðunar í síbreytilegu áhættuumhverfi. Ráðstefnan er sérstaklega ætluð stjórnendum og leiðtogum í innri endurskoðun. Á dagskrá eru meðal annars gervigreind, stefnumótandi áhættustýring, stjórnarhættir, siðferði og umbreyting innri endurskoðunar.

Ráðstefna sem veitir hagnýta þekkingu sem nýtist í starfi.

Þátttakendur geta unnið sér inn 7,2 CPE-einingar.

Skráning fer fram á vefsíðu IIA.

Verð: USD $ 499