
Metnaðarfull dagskrá einnar stærstu ráðstefnu Evrópu fyrir innri endurskoðendur er nú klár. Ráðstefnan verður haldin á vegum ECIIA í Brussel, Belgíu dagana 15.–16. október 2026. Einnig er boðið upp á rafræna þátttöku.
Leiðtogar innri endurskoðunar, sérfræðingar í stjórnarháttum og áhættustýringu, eftirlitsaðilar og fagfólk víðs vegar að úr Evrópu koma þar saman til að efla þekkingu sína, byggja upp og styrkja tengslanetið.
Dagskráin spannar meðal annars gervigreind og stafræna umbreytingu, netöryggi, mannauð, rekstrarþol og geopólitíska áhættu. Sjá nánar um dagskrá og fyrirlesara: https://www.eciia2026.eu/en/program.
Þátttakendur geta unnið sér inn 14 CPE-einingar.
Skráning fer fram á vefsíðu ECIIA.
Snemmskráningarverð fram til 30. júní 2026 er EUR 900.
