Fréttabréf FIE – mars 2013

Fræðslunefnd hefur tekið saman fréttabréf FIE. Það er að þessu sinni helgað 10 ára afmæli félagsins og hefur meðal annars að geyma pistil frá afmælisnefnd, umfjöllun um sögu félagsins og pistil frá formanni FIE. Auk þess má í því finna dagskrá innri endurskoðnardags félagsins sem haldinn verður í 15. mars n.k. Fréttabréfið má nálgast hér.

Dagskrá Innri endurskoðunardagsins 2013

Dagskrá innri endurskoðunardagsins sem haldinn verður 15. mars n.k. á Hótel Natura liggur nú fyrir.  Vakin er sérstök athygli á afmælisfagnaði í tilefni af 10 ára afmælis FIE, sem hefst strax að lokinni ráðstefnunni.

12:30‒13:00    Skráning og afhending gagna

13:00‒13:10    Ráðstefnan sett

Anna Margrét Jóhannesdóttir, formaður Félags um innri endurskoðun

13:10‒13:30   Áhættustýring lífeyrissjóða, minni sveiflur og meiri gæði

Gunnar Baldvinsson, formaður Landssamtök lífeyrissjóða og framkvæmdastjóri Almenna lífeyrissjóðsins

13:30‒13:50    Áhættustýring og innra eftirlit

Guðbjörg Anna Guðmundsdóttir , áhættustýringardeild Íslandsbanka

13:50‒14:10    Áhættumiðuð endurskoðunaráætlun Ríkisendurskoðunar

Sveinn Arason ríkisendurskoðandi, Ríkisendurskoðun

14:10‒14:40    Kaffi

14:40‒15:20    Internal Audit at the Riksbank : Where is the risk?

Patrick Bailey, innri endurskoðandi Seðlabanka Svíþjóðar.

15:20‒15:40    Stjórnir og áhættustýring – sjónarhóll stjórnarformanns

Bryndís Hlöðversdóttir, stjórnarformaður Landsvirkjunar og rektor Háskólans á Bifröst

15:40‒16:00    Stjórnun og eftirlit fyrirtækja og stofnana

Þorsteinn Pálsson blaðamaður

16:00–16:20    Umræður

16:20- 16:30   Tungutak staðla

Ágúst Hrafnkelsson, formaður alþjóðanefndar FIE og stjórnarmaður í alþjóðasamtökum innri endurskoðenda

16:30               Ráðstefnuslit

16:30‒19:00    10 ára afmælisfagnaður FIE — léttar veitingar, skemmtun og uppákomur í boði félagsins

Ráðstefnugjald:  Kr. 15.500

Námsmat:           Ráðstefnan gefur fjórar endurmenntunareiningar hjá FIE, IIA og FLE.

Ráðstefnan er opin félagsmönnum FIE, FLE og öðrum þeim sem áhuga hafa.

Vinsamlegast tilkynnið þátttöku til fie@fie.is ekki síðar en kl. 16:00 þann 13. mars nk.

15. mars – takið daginn frá

Þann 15. mars nk. mun innri endurskoðunardagurinn verða haldinn hátíðlegur.  Innri endurskoðunardeginum lýkur með 10 ára afmælisfagnaði félagsins þar sem léttar veitingar og fleira verður í boði.  Þessir viðburðir verða auglýstir nánar síðar.

Næstu viðburðir