Faggilding
Félag um innri endurskoðun er aðili að alþjóðasamtökum innri endurskoðenda (IIA). Þessi alþjóðasamtök standa fyrir alþjóðlegum prófum sem eru metin sem faggilding innri endurskoðenda hér á landi. Prófgráða þessi heitir á frummálinu Certified Internal Auditor og er alþjóðlega viðurkennd sem prófgráða í innri endurskoðun. Nánari upplýsingar um prófgráðu þessa sem og þau sérhæfingarpróf sem hægt er að ljúka að auki er að finna í flipunum hér að ofan.
Hvers vegna að ljúka faggildingu
Helstu ástæður þess er að faggilding skiptir miklu máli varðandi starfsmöguleika innan innri endurskoðunar. Það að ljúka viðurkenndu alþjóðlegu prófi á þessu sviði gefur viðkomandi einnig möguleika á að vinna erlendis við innri endurskoðun sé áhugi fyrir slíku.
Áhugasamir um prófið er bent á að kynna sér efni á heimasíðu alþjóðasamtakanna, hér.
Á heimasíðu samtakana má finna ýmsar upplýsingar þar á meðal yfirlit yfir félagsmann sem hlotið hafa faggildingu, sjá hér.