Opni háskólinn í HR kynnir stutt og hagnýtt námskeið í innri endurskoðun í samstarfi við Félag um innri endurskoðun á Íslandi (FIE).
Á námskeiðinu verður farið yfir skilgreiningu á innri endurskoðun og þróun fagsins undanfarin ár. Farið verður yfir hvernig alþjóðastaðlar innri endurskoðenda nýtast við uppbyggingu innri endurskoðunardeilda og helstu viðfangsefni. Bent verður á þau atriði sem skipta máli við mat á gæðum innri endurskoðunar og fjallað um ávinning sem þessari starfsemi er ætlað að skila til fyrirtækja/stofnana.
Ávinningur: Betri skilningur á eðli innri endurskoðunar. Greina hvaða atriði skipta máli við þróun og uppbyggingu innri endurskoðunar. Upplýsingar um bækur og gögn sem eru mikilvægar við að byggja upp þekkingu á innri endurskoðun.
Námskeiðið veitir 7 endurmenntunareiningar á sviði endurskoðunar fyrir endurskoðendur.
Markmið: Að þátttakendur fái þekkingu á starfi innri endurskoðanda og starfsemi innri endurskoðunardeilda og þeim atriðum sem skipta máli við að byggja upp innri endurskoðun innan fyrirtækis eða stofnunar.
Fyrir hverja: Námskeiðið er ætlað þeim sem vinna að innri endurskoðun og þeim sem vilja byggja upp þekkingu á þessu sviði.
Tími: Kennsla fer fram fimmtudaginn 21. mars frá kl. 13:00 - 16:30 og föstudaginn 22. mars frá kl.8:30 - 12:00.
Verð: 36.000 kr. Innifalið í verði eru námskeiðsgögn og léttar veitingar.
Leiðbeinendur: Anna Margrét Jóhannesdóttir, stjórnsýslufræðingur og faggiltur innri endurskoðandi (Certified Internal Auditor). Er starfandi innri endurskoðandi Reykjavíkurborgar.
Nanna Huld Aradóttir, viðskiptafræðingur og faggiltur innri endurskoðandi (Certified Internal Auditor). Innri endurskoðandi Seðlabanka Íslands.