RISE Virtual Conference 2026 – Ráðstefna ætluð stjórnendum og leiðtogum í innri endurskoðun
RISE ráðstefnan fer fram á vegum IIA þann 10. júlí 2026 og er ætlað að efla hlutverk innri endurskoðunar í síbreytilegu áhættuumhverfi. Ráðstefnan er sérstaklega ætluð stjórnendum og leiðtogum í innri endurskoðun. Á dagskrá eru meðal annars gervigreind, stefnumótandi áhættustýring, stjórnarhættir, siðferði og umbreyting innri endurskoðunar.
Ráðstefna sem veitir hagnýta þekkingu sem nýtist í starfi.
Nú fer hver að verða síðastur að skrá sig á árlega alþjóðaráðstefnu IIA, sem þetta árið fer fram í Singapore dagana 22.-24. júní 2026. Til að styðja við víðtæka þátttöku er bent á að það eru fjölmargir aðrir hótel möguleikar í boði nálægt ráðstefnuhúsinu á hagkvæmara verði en formlega ráðstefnuhótelið. Fyrir upplýsingar og aðstoð varðandi hótelbókanir er velkomið að vera í sambandi við iiaic-registration@icsevents.com.
Ráðstefnan kostar 990 USD í streymi fyrir meðlimi, en þegar búið er að skrá sig inn á vefsíðu ráðstefnunnar (2026 Singapore IIA International Conference) er hægt að nota afsláttarkóða (2026IC990) fyrir félagsmenn sem ætla að mæta til Singapore, þannig að staðarverð er þá einnig 990 USD.
Athygli er einnig vakin á því að hvort sem aðgangur að ráðstefnu er keyptur í gegnum streymi eða með því að mæta á staðinn að 30 daga endurspilun eftir þörfum á öllum fyrirlestrum fylgir kaupunum og fæst slíkt áhorf einnig metið til endurmenntunareininga (CPE). Þannig ætti hvorki möguleg ferðaþreyta né 8 klst. tímamismunur miðað við beina útsendingu að vera nein fyrirstaða fyrir því að ná að drekka í sig allt það nýjasta sem er í gangi í heimi innri endurskoðunar í dag.
Teams fundur á vegum ECIIA um hlutverk innri endurskoðunar í heildrænni áhættustýringu. Kynning á skjali IIA sem er í umsagnarferli, spurningar og umræður.
Ólöf Ingunn Björnsdóttir lauk fagvottun í innri endurskoðun núna á dögunum. Hún er með meistaragráðu í viðskiptafræði frá HR og hefur starfað í innri endurskoðun hjá Íslandsbanka frá því í september 2023. Áður var hún sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs Sveitarfélagsins Hornafjarðar á árunum 2015-2023. Einnig starfaði hún við bókhald á árunum 2009-2015 og í innri endurskoðun Reykjavíkurborgar frá 2003-2009.
Félagið óskar henni innilega til hamingju með vottunina.
Við í stjórn FIE þökkum ykkur hjartanlega fyrir hve vel Innri Endurskoðunardagur FIE heppnaðist í gær!
Það er óhætt að segja að mæting hafi verið hreint út sagt frábær og lineup-ið af fyrirlesurum var sérlega flott. Bæði fyrirlesarar og efnistök voru af ólíkum toga og áttu það sameiginlegt að eiga sterkt erindi til okkar allra. Það mátti skynja að veislugestir kunnu vel að meta og að við vorum flest í hátíðarskapi!
Við smelltum af nokkrum myndum á viðburðinum og erum að rúlla fyrirlestrunum upp á heimasíðu félagsins, undir "Glærur frá fundum FIE".
Svo er könnun á leiðinni til útsendingar þar sem ykkur verður boðið að koma á framfæri skoðunum ykkar um viðburði félagsins o.fl. Við erum þakklát fyrir hvert það svar sem okkur berst til baka úr könnuninni, því við viljum auðvitað fá staðfestingu á því sem vel er gert og ekki síður að fá tækifærið til að geta gert enn betur. Þannig að fyrirfram "Takk" fyrir að taka þátt í könnuninni!
Að endingu þá erum við búin að ákveða dagsetningu fyrir Aðalfundinn okkar. Það er auðvelt að leggja bæði dagsetningu og staðsetningu á minnið því við erum að tala um 5. maí nk. (fimmti fimmti!) og staðsetningin er sú sama stað og í fyrra, Grand Hotel við Sigtún. Við hlökkum til að hitta ykkur þar aftur!!