Gerð áhættugreindrar endurskoðunaráætlunar – 22. feb. 2012

Morgunverðarfundur FIE um gerð áhættugreindrar endurskoðunaráætlunar verður haldin 22. febrúar 2012.

Fyrirlesari verður Guðjón Viðar Valdimarsson CIA, CFSA,CISA og fyrirlestur hans mun fjalla um  "praktísk" atriði varðandi gerð áhættugreindrar endurskoðunaráætlunar og hvaða atriði þurfa að liggja fyrir, hvert sé hlutverk innri endurskoðunar og stjórnenda við gerð áhættumats og greiningu áhættuþátta. Hvaða tól og tæki innri endurskoðun beitir í yfirferð á greiningu áhættuþátta með stjórnendum og hlutverk stjórnar og framsetning áhættumats til stjórnar. Einnig verður sett fram einfalt módel í Excel og Access til þess að sýna að viðhald og uppsetning áhættuskrár þarf ekki að byggja á dýrum hugbúnaði.

Fyrirlesturinn verður haldin miðvikudaginn 22. febrúar  á Grand Hótel og hefst kl 08:30 Verð kr. 2.500 krónur.

Vinsamlegast skráið þátttöku á fie@fie.is fyrir 20.febrúar

Morgunverðarfundur FIE – Sviksemisrannsóknir – 18. janúar 2012

Fyrsti fræðslufundur á nýju ári verður miðvikudaginn 18. janúar kl. 8:30-10 á Grand Hoteli. Að venju er boðið upp á morgunverð. Verð kr. 2500.

Gestur fundarins að þessu sinni er Ólafur Hauksson, sérstakur saksóknari sem ætlar að halda fyrirlestur um sviksemisrannsóknir og svara síðan fyrirspurnum fundarmanna.

Ólaf þarf varla að kynna en hann var skipaður sérstakur saksóknari í janúar 2009. Embættinu var komið á fót til að rannsaka grun um refsiverða háttsemi í aðdraganda, tengslum við og í kjölfar atburða er leiddu til bankahrunsins, hvort sem grunur tengist starfsemi fjármálafyrirtækja, annarra lögaðila eða einstaklinga.

Missið ekki af einstæðu tækifæri til að heyra hvað Ólafur hefur að segja um störf og vinnuaðferðir embættis sérstaks saksóknara við rannsóknir á sviksemi.

Málstofa Félags um innri endurskoðun – 7. desember 2011

Málstofa Félags um innri endurskoðun verður haldin í Turninum við Smáratorg miðvikudaginn 7. desember 2011. Málstofan hefst kl. 10 með erindum frá þremur félagsmönnum, því næst verða málefnin rædd í vinnuhópum og niðurstöður hópanna kynntar. Að lokum verða almennar umræður. Fundi lýkur með hádegisverði af jólahlaðborði Veisluturnsins á 19. hæð.

Umræðuefni verða: Áhættumiðuð innri endurskoðun, Tilvist óáþreifanlegra eftirlitsþátta („Soft controls“) og Staðfestingarvinna og ráðgjöf - hvar liggja mörkin?

Frummælendur: Auðbjörg Friðgeirsdóttir, MBA / verkefnisstjóri innri endurskoðunar á endurskoðunarsviði PwC, Ágúst Hrafnkelsson, innri endurskoðandi Íslandsbanka og Guðmundur I. Bergþórsson, framkvæmdastjóri innri endurskoðunar Orkuveitu Reykjavíkur

Fundurinn var haldinn í kjölfar haustráðstefnu FIE í október 2011, auk þess sem niðurstöður skoðanakönnunar meðal félagsmanna í september 2011 sýna að félagsmenn vilja meiri umræðu um áhættustjórnun og áhættumat.