
IIA Svíþjóð heldur vefnámskeið dagana 14. - 15. maí 2025 um endurskoðun upplýsingakerfa (grunnur),
kl. 7:00 - 15:00 (9:00 - 17:00 að sænskum tíma) báða dagana.
Þetta námskeið er kjörið tækifæri fyrir innri endurskoðendur sem eru að taka sín fyrstu skref í endurskoðun upplýsingakerfa. Námskeiðið er í samræmi við nýja Heimsstaðla um innri endurskoðun og bestu starfsvenjur hverju sinni. Námskeiðið er öllum opið en gert er ráð fyrir skilningi á hugtökum endurskoðunar og áhættumiðuðu endurskoðunarferli.
Fyrirlesari: Stan Dormer, á vegum Mindgrove Ltd.
Efnistök námskeiðs
- Áhætta í landslagi upplýsingatækni
- Endurskoðun kerfa í rekstri með áhættumiðaðri nálgun
- Endurskoðun nýrra kerfa og breytinga á kerfum
- Endurskoðun skráarstillinga og breytingastjórnunar
- Raunlægt öryggi upplýsingatæknibúnaðar
- Öryggisstillingar kerfa
- Viðbúnaðar- og viðbragðsáætlanir
- ISO 27031
- Einföld nethögun og hugtök tengd netöryggi
Verð: 140.000 kr. fyrir félagsmenn FIE og FLE
150.000 kr. fyrir aðra
Endurmenntunareiningar: 13 CPE
Skráning opin dagana 1. - 17. apríl 2025 í gegnum skráningarsíðu FIE.
Nánari upplýsingar um námskeiðið á vefsíðu IIA Svíþjóð.