Netöryggi og seigla - tækifæri til lærdóms
Alvarlegir öryggisveikleikar í PHP voru tilkynntir í gær og vöktu alþjóðlega athygli. PHP er eitt útbreiddasta forritunarmál vefkerfa og er notað á um 69 af hverjum 100 vefsíðum þar sem vitað er hvaða tækni liggur að baki. Afleiðingar atburðarins eiga eftir að koma betur í ljós, en hann minnir okkur óþægilega á hve tæknilegur veikleiki getur á örskotsstundu orðið að alvarlegri áhættu með víðtækum afleiðingum.
Atburðurinn undirstrikar að netöryggi snýst ekki aðeins um tæknilegar varnir heldur einnig um stjórnarhætti, áhættustýringu og skýra ábyrgð. Alþjóðasamtök innri endurskoðenda (IIA) leggja í nýjum kröfum sínum um netöryggi aukna áherslu á hlutverk innri endurskoðunar við mat á stjórnun netöryggisáhættu og virkni eftirlits. Þetta rímar jafnframt við niðurstöður alþjóðlegu Risk in Focus-könnunarinnar, sem fjallað var um í síðasta fréttabréfi FIE.
Svo ótrúlega vill til að Fjarskiptastofa heldur í næstu viku ráðstefnuna "Netöryggi og seigla samfélagsins - á tímum stafrænna ógna" og verður haldinn nk. þriðjudag. Ráðstefnan var að sjálfsögðu skipulögð með góðum fyrirvara (svo það sé tekið fram), en tímasetningin gefur umræðunni sérstakt vægi í ljósi atburða gærdagsins. Meðal fyrirlesara eru fulltrúar frá NATO, sænsku netöryggismiðstöðinni NCSC-SE, fjarskiptayfirvöldum á Grænlandi auk sérfræðinga frá Fjarskiptastofu, Landsneti og Syndis.
Svona atburðarrás verður ekki skálduð en þessi tímalína er hér einstakt tækifæri til lærdóms. Grunur leikur á að PHP uppákoman komi til tals, enda nánast lygasaga að svona stór atburður hafi átt sér stað, rétt í aðdraganga Netöryggisráðstefnunnar.
FIE bendir því á hið einstaka lærdómstækifæri sem hér gefst til að fræðast, hér frá öðru sjónarhorni, um helstu áhættu á vettvangi innri endurskoðenda í dag, um PHP atburðinn og þann lærdóm sem má draga af honum þegar umfang hans og afleiðingar liggja betur fyrir.
Nánar:




