Aðalfundur Félags um innri endurskoðun

Stjórn FIE boðar til aðalfundar þriðjudaginn 13. maí 2025 kl. 16:30 í salnum Gallerí á Grand hótel, Sigtúni 28, Reykjavík.

Dagskrá aðalfundar

  1. Skýrsla um störf félagsins á liðnu ári
  2. Reikningar félagsins lagðir fram til samþykktar
  3. Breytingar á samþykktum
  4. Kosning stjórnarmanna
  5. Kosning skoðunarmanns
  6. Ákvörðun félagsgjalds
  7. Önnur mál

Breytingar á samþykktum

Lagt er til að 1. mgr. 5. gr. samþykkta félagsins verði breytt þannig:

Samþykkt hljóðar þannig í dag:

Aðalfundur hefur æðsta vald í málefnum félagsins. Aðalfund skal boða skriflega með bréfi eða tölvupósti með 14 daga fyrirvara hið skemmsta. Aðalfundur er lögmætur sé löglega til hans boðað og ræður afl atkvæða úrslitum mála nema annars sé getið í samþykktum þessum.

Samþykkt eftir breytingu (skáletraður texti afmarkar breytingu):

Aðalfundur hefur æðsta vald í málefnum félagsins. Aðalfund skal boða með tilkynningu á vefsíðu félagsins eða tölvupósti með 14 daga fyrirvara hið skemmsta. Aðalfundur er lögmætur sé löglega til hans boðað og ræður afl atkvæða úrslitum mála nema annars sé getið í samþykktum þessum.

Nýr fagvottaður innri endurskoðandi – CIA

Hugrún Sif Harðardóttir hlaut CIA fagvottun hjá Alþjóðasamtökum innri endurskoðenda í desember sl. þegar hún lauk CIA Challenge Exam en Hugrún hlaut CISA fagvottun árið 2022. Stjórnin hvetur aðra félagsmenn sem hafa CISA fagvottun að kynna sér CIA Challenge Exam.

Hugrún Sif hefur verið forstöðumaður innri endurskoðunar Kviku banka frá mars 2024 en hún hóf störf í innri endurskoðun hjá Kviku banka árið 2023. Þar áður starfaði hún sem sérfræðingur í innri endurskoðun hjá Landsbankanum með áherslu á upplýsingatækni og rekstraráhættu og þar á undan sem sérfræðingur hjá Arion banka með áherslu á rekstraráhættu og straumlínustjórnun. Auk þess að hefur hún starfað við gæða- og öryggismál hjá Teris og ANZA.

Hugrún Sif lauk M.Sc. Analysis, Design and Management of Information Systems frá The London School of Economics and Political Sciences (LSE) í London árið 2005 og Bsc. Viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2002.

Vefnámskeið: Inngangur að endurskoðun upplýsingakerfa

IIA Svíþjóð heldur vefnámskeið dagana 14. - 15. maí 2025 um endurskoðun upplýsingakerfa (grunnur),
kl. 7:00 - 15:00 (9:00 - 17:00 að sænskum tíma) báða dagana.

Þetta námskeið er kjörið tækifæri fyrir innri endurskoðendur sem eru að taka sín fyrstu skref í endurskoðun upplýsingakerfa. Námskeiðið er í samræmi við nýja Heimsstaðla um innri endurskoðun og bestu starfsvenjur hverju sinni. Námskeiðið er öllum opið en gert er ráð fyrir skilningi á hugtökum endurskoðunar og áhættumiðuðu endurskoðunarferli.

Fyrirlesari: Stan Dormer, á vegum Mindgrove Ltd.

Efnistök námskeiðs

  • Áhætta í landslagi upplýsingatækni
  • Endurskoðun kerfa í rekstri með áhættumiðaðri nálgun
  • Endurskoðun nýrra kerfa og breytinga á kerfum
  • Endurskoðun skráarstillinga og breytingastjórnunar
  • Raunlægt öryggi upplýsingatæknibúnaðar
  • Öryggisstillingar kerfa
  • Viðbúnaðar- og viðbragðsáætlanir
  • ISO 27031
  • Einföld nethögun og hugtök tengd netöryggi

Verð: 140.000 kr. fyrir félagsmenn FIE og FLE
150.000 kr. fyrir aðra

Endurmenntunareiningar: 13 CPE

Skráning opin dagana 1. - 17. apríl 2025 í gegnum skráningarsíðu FIE.

Nánari upplýsingar um námskeiðið á vefsíðu IIA Svíþjóð.

Næstu viðburðir