Systurfélag okkar í Noregi (Norges Interne Revisorers Forening)hefur boðið okkar og öðrum Norðurlandaþjóðum auk Baltnesku löndunum á ráðstefnur og námskeið sem haldin verða á ensku núna á árinu í Osló. Hægt er að sjá upplýsingar um þessa möguleika hérna.
Fréttabréf FIE – Janúar 2014
Fræðslunefnd hefur tekið saman fyrsta fréttabréf FIE á árinu.
Í fréttabréfinu má finna auglýsingu um annan morgunvarðarfund vetrarins, sem verður 29. janúar 2014, kynning á fræðslunefnd félagsins, umfjöllun um fyrsta morgunverðarfund vetrarins sem haldinn var 4. desember síðastliðinn og pistill frá stjórn FIE.
Fréttabréfið má nálgast hér
Alþjóða ráðstefna IIA í London 6-9 júli 2014
Í júlí n.k. mun IIA halda árlega alþjóðaráðstefnu sína (International Conference) í London. Alþjóðaráðstefnur IIA eru stærstu viðburðir sem haldnir eru á vegum samtakanna ár hvert. Mjög fróðlegt getur verið að sækja slíkar ráðstefnur. Við viljum benda félagsmönnum á að í ár er staðsetning ráðstefnunnar sérstaklega hagstæð fyrir félagsmenn FIE því tiltölulega stutt er að fara fyrir okkur á ráðstefnuna í ár þar sem hún verður haldin í London. Nánari upplýsingar um alþjóðaráðstefnuna má finna á heimasíðu ráðstefnunnar: http://ic.globaliia.org
Morgunverðarfundur 29. janúar 2014
Annar morgunverðarfundur vetrarins verður haldinn á Grand hótel Reykjavík þann 29. janúar næstkomandi. Að þessu sinni verður efni fundarins: „Gagnaleki og gagnastuldur – netöryggi“ og munu tveir sérfræðingar fjalla um efnið hvor með sína nálgun en þeir munu nálgast efnið út frá sjónarhóli innri endurskoðenda og hvaða atriðum þeir þurfa að vera vakandi fyrir í þeim fyrirtækjum þar sem þeir starfa.
Fyrst mun Úlfar Andri Jónasson sérfræðingur í upplýsingaöryggi hjá Deloitte fjalla um hvað innri endurskoðendur þurfa að hafa helst í huga um varnir gegn gagnaleka og gagnastuldi. Fjallað verður um nauðsyn upplýsingaöryggisstefnu fyrirtækja, meðal annars atriða eins og lykilorðastefnu, dulkóðun tölva og snjalltækja. Einnig er komið inn á netárásir og hvernig fyrirtæki geta varist slíkum árásum.
Næstur mun Jón Kristinn Ragnarsson, ráðgjafi í áhættustjórnun, upplýsingaöryggi og upplýsingatækni hjá Capacent fjalla um skýjalausnir. Farið verður yfir hvernig skýja lausnir eru helst notaðar af fyrirtækjum og stofnunum, hverjir eru kostnirnir og hverjar eru hætturnar? Skoðað verður hvað innri endurskoðendur þurfa að hafa í huga nú þegar enn fleiri aðilar leitast við að flytja gögn sín í hið óræða en margumrædda ský.
Fræðslunefnd vonast eftir betri þátttöku á morgunfundinn 29. janúar en síðasta fund þar sem að mati fræðslunefndar er um að ræða efni sem ætti að höfða til allra félagsmanna. Sérstaklega eftir nýjustu fréttir um netárásir á heimasíður íslenskra fyrirtækja.
Fundurinn hefst kl. 8:30 en morgunverður verður í boði frá kl. 8:00. Vinsamlegast skráið þátttöku á fie@fie.is í síðasta lagi á hádegi 27. janúar. Fundargjald er 2.800 kr.
Kveðja, fræðslunefnd
Morgunverðarfundur 4. desember 2013
Fundinn hefur verið ný dagsetning fyrir fyrsta morgunverðarfund vetrarins: 4. desember á Grand Hótel Reykjavík.
Fyrirlesarar að þessu sinni eru þrír talsins. Gréta Gunnarsdóttir, CIA, sérfræðingur í innri endurskoðun hjá Íslandsbanka mun fræða okkur um núverandi CIA prófunarferilinn en Gréta lauk nýverið prófunum og er nýjasti félagsmaður FIE með CIA vottunina. Þá mun Anna Margrét Jóhannesdóttir, CIA, CRMA, taka við og fara yfir hvaða endurmenntunarleiðir eru í boði til að viðhalda gráðunni og skil á endurmenntunareiningum. Nanna Huld Aradóttir, CIA fer að lokum yfir breytingar á lagaumhverfi þar sem gerðar eru kröfur um sérþekkingu í innri endurskoðun.
Fundurinn hefst kl. 8:30 en morgunverður verður í boði frá kl. 8:00. Vinsamlegast skráið þátttöku á fie@fie.is í síðasta lagi 2.desember. Fundargjald er 2.800 kr.
Kveðja,
fræðslunefnd
Fréttabréf FIE – Nóvember 2013
Fræðslunefnd hefur tekið saman fréttabréf FIE.
Í fréttabréfinu má finna umfjöllun um fyrsta morgunverðarfund vetrarins sem verður 20. nóvember, kynningu á félagsmönnum, pistil frá stjórn FIE ásamt fleiru.
Fréttabréfið má nálgast hér
