Dagskrá innri endurskoðunardagsins liggur nú fyrir. Ef smellt er í tvígang á myndina hér til vinstri má lesa dagskrána. Vinnsamlegast tilkynnið þátttöku með því að senda tölvupóst á fie(at]fie.is ekki síðar en kl. 16 þann 20. mars.
Námskeið – INNRI ENDURSKOÐUN Á TÍMAMÓTUM – 1. mars 2012
Opni háskólinn í HR kynnir námskeið í Innri endurskoðun í samstarfi við Félag um innri endurskoðun á Íslandi en leiðbeinendur á námskeiðinu eiga sæti í stjórn félagsins. Námskeiðið veitir 7 endurmenntunareiningar á sviði endurskoðunar fyrir endurskoðendur.
Námskeiðslýsing:
Á námskeiðinu verður farið yfir skilgreiningu á innri endurskoðun og þróun fagsins undanfarin ár. Farið verður yfir hvernig alþjóðastaðlar innri endurskoðenda nýtast við uppbyggingu innri endurskoðunardeilda og helstu viðfangsefni. Bent verður á þau atriði sem skipta máli við mat á gæðum innri endurskoðunar og fjallað um ávinning sem þessari starfsemi er ætlað að skila til fyrirtækja/stofnana.
Ávinningur:
- Betri skilningur á eðli innri endurskoðunar.
- Greina hvaða atriði skipta máli við þróun og uppbyggingu innri endurskoðunar.
- Upplýsingar um bækur og gögn sem eru mikilvægar við að byggja upp þekkingu á innri endurskoðun.
- Námskeiðið veitir 7 endurmenntunareiningar á sviði endurskoðunar fyrir endurskoðendur.
Markmið:
Að þátttakendur fái þekkingu á starfi innri endurskoðanda og starfsemi innri endurskoðunardeilda og þeim atriðum sem skipta máli við að byggja upp innri endurskoðun innan fyrirtækis eða stofnunar.
Fyrir hverja:
Námskeiðið er ætlað þeim sem vinna að innri endurskoðun og þeim sem vilja byggja upp þekkingu á þessu sviði.
Umsagnir frá þátttakendum á námskeiðinu:
- ,,Góðir leiðbeinendur, mikil þekking, góð aðstaða í HR og kurteist starfsfólk."
- ,,Frábær dæmi um vinnuaðferðir og ferla úr raunveruleikanum."
- ,,Hnitmiðað og markvisst námskeið."
Leiðbeinendur:*
Anna Margrét Jóhannesdóttir, stjórnsýslufræðingur og faggiltur innri endurskoðandi (Certified Internal Auditor). Starfar sem verkefnastjóri hjá Innri endurskoðun Reykjavíkurborgar.Nanna Huld Aradóttir, viðskiptafræðingur og faggiltur innri endurskoðandi (Certified Internal Auditor). Liðsstjóri áhættuþjónustu Deloitte.
*Aðilar sem hafa sértæka þekkingu á innri endurskoðun geta verið kallaðir til.
Kennslufyrirkomulag:
Kennsla fer fram í Opna háskólanum í HR, Menntavegi 1, fimmtudaginn 1. mars 2012 kl. 8:30-12:00 og frá kl. 12:30-16:00. Námskeiðið er samtals 7 klukkustundir.
Verð: Kr. 32.000
Gerð áhættugreindrar endurskoðunaráætlunar – 22. feb. 2012
Morgunverðarfundur FIE um gerð áhættugreindrar endurskoðunaráætlunar verður haldin 22. febrúar 2012.
Fyrirlesari verður Guðjón Viðar Valdimarsson CIA, CFSA,CISA og fyrirlestur hans mun fjalla um "praktísk" atriði varðandi gerð áhættugreindrar endurskoðunaráætlunar og hvaða atriði þurfa að liggja fyrir, hvert sé hlutverk innri endurskoðunar og stjórnenda við gerð áhættumats og greiningu áhættuþátta. Hvaða tól og tæki innri endurskoðun beitir í yfirferð á greiningu áhættuþátta með stjórnendum og hlutverk stjórnar og framsetning áhættumats til stjórnar. Einnig verður sett fram einfalt módel í Excel og Access til þess að sýna að viðhald og uppsetning áhættuskrár þarf ekki að byggja á dýrum hugbúnaði.
Fyrirlesturinn verður haldin miðvikudaginn 22. febrúar á Grand Hótel og hefst kl 08:30 Verð kr. 2.500 krónur.
Vinsamlegast skráið þátttöku á fie@fie.is fyrir 20.febrúar
23. mars – takið daginn frá
Innri endurskoðunardagurinn verður haldin 23. mars n.k. Dagskráin er í mótun og verður kynnt síðar. En áhugaverðir innlendur og erlendir fyrirlesarar munu halda erindi.
Fréttabréf FIE – febrúar 2012
Fræðslunefnd hefur tekið saman fréttabréf FIE sem hefur að geyma ýmis áhugaverð atriði. Fréttabréfið má nálgast hér.
Morgunverðarfundur FIE – Sviksemisrannsóknir – 18. janúar 2012
Fyrsti fræðslufundur á nýju ári verður miðvikudaginn 18. janúar kl. 8:30-10 á Grand Hoteli. Að venju er boðið upp á morgunverð. Verð kr. 2500.
Gestur fundarins að þessu sinni er Ólafur Hauksson, sérstakur saksóknari sem ætlar að halda fyrirlestur um sviksemisrannsóknir og svara síðan fyrirspurnum fundarmanna.
Ólaf þarf varla að kynna en hann var skipaður sérstakur saksóknari í janúar 2009. Embættinu var komið á fót til að rannsaka grun um refsiverða háttsemi í aðdraganda, tengslum við og í kjölfar atburða er leiddu til bankahrunsins, hvort sem grunur tengist starfsemi fjármálafyrirtækja, annarra lögaðila eða einstaklinga.
Missið ekki af einstæðu tækifæri til að heyra hvað Ólafur hefur að segja um störf og vinnuaðferðir embættis sérstaks saksóknara við rannsóknir á sviksemi.
