Félagið vill benda á að IIA er að breyta reglum varðandi endurmenntunareiningar. Helsta breytingin er sú að ef vottun er ekki viðhaldið með endurmenntun rennur hún alfarið út og þarf að taka prófin aftur til að fá endurvottun. Sjá nánar um þetta hér.
Fagvottun í stað faggildingar
Félaginu barst vinsamleg ábending frá Faggildingaráði um að enska orðið 'certification' væri í raun vottun en ekki gilding en Evrópusambandið er með staðla tengda gildingum (e. accreditation). Því hefur stjórn félagsins uppfært allan texta á heimasíðu félagins, fallið frá notkun orðsins faggilding og mun framvegis nota orðið fagvottun.
Aðalfundur 2023
Aðalfundur félagsins var að þessu sinni haldinn í úthverfi höfuðborgarsvæðisins að Hótel Kríunesi. Björg Ýr Jóhannsdóttir, stjórnarmaður fór yfir skýrslu stjórnar og Jón Sigurðsson, gjaldkeri, fór yfir ársreikning félagsins. Breytingar á samþykktum voru samþykktar og þá var kosin ný stjórn og nýr skoðunarmaður. Jón Sigurðsson sem var að ljúka 6 ára stjórnarsetu og Jóhanna María Einarsdóttir viku úr stjórn og í stað þeirra komu Gréta Gunnarsdóttir og Sif Einarsdóttir. Við þökkum Jóni og Jóhönnu kærlega fyrir frábær störf og bjóðum Grétu og Sif velkomnar í stjórn.
Hér má sjá ársreikning vegna ársins 2022 og hér er Skýrsla stjórnar.






Heiðursfélagi kosinn á afmælisráðstefnu

Nanna Huld Aradóttir hlaut heiðursfélaganafnbót á afmælisráðstefnu félagsins. Nanna var fyrst félagsmanna að fá fagvottun og var hún lengi virk í stjórn og fræðslunefnd.
Núverandi formaður félagsins, Anna Sif, veitti henni blóm af þessu tilefni á afmælisráðstefnunni.
Nýr fagvottaður innri endurskoðandi – CIA
Þórir Jakob Olgeirsson Ralston, starfsmaður Arion banka, hlaut CIA vottun hjá Alþjóðasamtökum innri endurskoðenda núna í febrúar 2023.
Þórir er með M.Acc. gráðu frá HR, B.Sc. í Tölvunarfræði frá HR og B.Sc. í Viðskiptafræði frá HÍ.
Þórir starfar núna við innri endurskoðun Arion banka. Áður vann hann hjá PwC við tölvuendurskoðun, sérstakar úttektir, ráðgjöf og innri endurskoðun.
Stjórn FIE óskar honum innilega til hamingju!

Afmælisráðstefna FIE – 24. mars 2023

Í tilefni af 20 ára afmælis FIE verður innri endurskoðunardagurinn haldinn hátíðlegur í Hörpunni með flottri dagskrá og góðum veitingum.
Dagskrá fundarins hefst með skráningu frá kl: 12.40 en formleg dagskrá hefst kl: 13.00.
Fundarstjóri verður Jón Hreiðar Sigurðsson, stjórnarmaður í FIE. Erindin sem haldin verða koma úr ýmsum áttum, sögu FIE, framtíðarsýn, ESG og "innri" endurskoðun.
- Auðbjörg Friðgeirsdóttir er ein af fyrstu stofnendum FIE og mun fara yfir sögu félagsins.
- Sigríður Guðmundsdóttir mun fjalla um þær breytingar sem framundan eru hjá alþjóðasamtökunum tengd stöðlunum og framtíðarsýn IIA.
- Hildur Flóvenz er ein af sjálfbærnisérfræðingum KPMG og ætlar að ræða ESG og innri endurskoðun. Við munum fara í umræður eftir erindi Hildar.
- Í lokin mun Gerður Arinbjarnar fara yfir innri endurskoðun manneskjunnar.
Erindum ráðstefnunnar er áætlað að ljúka um kl: 16.30 en þá tekur við afmælishóf og útnefning heiðursfélaga. Skemmtiatriði og léttar veitingar verða í boði.
Ráðstefnan veitir 3 endurmenntunareiningar.
Verð fyrir félagsmenn 25.000.- kr og fyrir þá sem eru utan félags 30.000.- kr
Skráning er hafin hér
