Félag um innri endurskoðun er aðili að alþjóðasamtökum innri endurskoðenda (IIA). Þessi alþjóðasamtök standa fyrir alþjóðlegum prófum sem eru metin sem faggilding innri endurskoðenda hér á landi. Prófgráða þessi heitir á frummálinu Certified Internal Auditor og er alþjóðlega viðurkennd sem prófgráða í innri endurskoðun alls staðar í heiminum. Nánari upplýsingar um prófgráðu þessa sem og þau sérhæfingarpróf sem hægt er að ljúka að auki er að finna á vefsíðu félagsins.
Hvers vegna að ljúka faggildingu
Helstu ástæður þess er að faggilding skiptir miklu máli varðandi starfsmöguleika innan innri endurskoðunar. Það að ljúka viðurkenndu alþjóðlegu prófi á þessu sviði gefur viðkomandi einnig möguleika á að vinna erlendis við innri endurskoðun sé áhugi fyrir slíku. Í lögum um opinber fjármál er að finna ákvæði varðandi mikilvægi fagmenntunar á sviði Innri endurskoðunar og þá sérstaklega notkun á alþjóðlegum stöðlum fyrir Innri endurskoðun (IPPF).
Þegar þessi lagaákvæði og reglugerð þeim tengd koma til framkvæmda , þá má búast við að faggilding sem innri endurskoðandi(CIA) verði afgerandi þáttur í hæfismati fyrir störf hjá hinum opinbera er framm í sækir.
Af þessum sökum vill stjórn félagsins hvetja félagsmenn til þess að kynna sér faggildingu sem og þau námsgögn sem eru í boði frá IIA.



Meira en 150 þáttakendur frá 80 aðildarfélögum ásamt framkvæmdastjórn IIA og stjórnendum aðildarfélaga og starfsmönnum IIA Global komu saman í Panama borg, Panama, fyrir 2018 Global Council. Fulltrúar tóku þátt í umræðum um margvísleg efni þ.m.t 2019–23 Global Strategic Plan, tvær leiðir til hlítni við staðlanna (Standards conformance) og virði alþjóðlegra vottanna. Hér að neðan er slóð á fyrirlestra og efni þessarar ráðstefnu.
Guðmundur I. Bergþórsson framkvæmdastjóri innri endurskoðunar OR, hlaut QIAL faggildingu hjá IIA nú í byrjun desember. Ásamt því að óska Guðmundi til hamingju með þessa faggildingu vill stjórn FIE benda félagsmönnum á að nánari upplýsingar um faggildinguna má finna á
Magnússon lauk CIA prófi í Nóvember. Guðmundur Óli er fæddur 1990 og er því 27 ára gamall. Hann útskrifaðist sem hagfræðingur frá Háskóla Íslands árið 2014 og með M.Acc. gráðu í reikningsskilum og endurskoðun frá sama skóla fyrr á þessu ári. Guðmundur Óli starfar sem sérfræðingur á endurskoðunarsviði Ríkisendurskoðunar.