Endurskoðunardagur Félags löggiltra endurskoðena (FLE) verður haldinn á Grand hóteli, föstudaginn 11. apríl kl. 8:30 - 12:30. SKRÁ MIG HÉR. Dagurinn hefst með því að Sturla Jónsson formaður FLE setur ráðstefnuna og að því loknu tekur Jón Rafn Ragnarsson við og fjallar um einföldun á endurskoðun lítilla fyrirtækja. Svo fjallar Úlfar Andri Jónasson um vinnugögn, varðveislu þeirra og upplýsingaöryggi. Þá tekur Diana Hillier við og fjallar um mikilvægi endurskoðunar, þróun mála og áherslur ESB á endurskoðunarmarkaðinum. Að erindi hennar loknu mun Elín Hanna Pétursdóttir tala um ákvörun mikilvægismarka og að endingu horfir Alexander G. Eðvarðsson um öxl þegar hann fjallar um endurskoðun í gamla daga. Endurskoðunardagurinn er öllum opinn og gefur félagsmönnum 4 einingar í endurskoðun. Ráðstefnugjald er kr. 22.000 fyrir félagsmenn FLE, starfsmenn þeirra og félagsmenn FIE en kr. 27.000 fyrir aðra. Hér má sjá nánari dagskrá.
Innri endurskoðunardagurinn – 1. apríl 2014
Innri endurskoðunardagurinn í ár verður haldin þann 1. april 2014 kl. 08:00-12:00. Á Icelandair Hótel Reykjavík Natura (Hótel Loftleiðir). Ráðstefnustjóri verður Svana Helen Björnsdóttir. Dagskrá innri endurskoðunardagsins í ár er ekkert aprílgabb. Á dagskránni eru m.a. tveir erlendir fyrirlesarar. Hérna má sjá dagskrá dagsins í heild sinni.
Ráðstefnugjald er 15.500 kr. Ráðstefnan er öllum opin og gefur hún fjórar endurmenntunareiningar hjá FIE/IIA og FLE. Skráning sendist í tölvupósti til fie(hjá)fie.is fyrir kl. 16:00 þann 28. mars n.k.
Norrænar ráðstefnur og námskeið i Noregi
Systurfélag okkar í Noregi (Norges Interne Revisorers Forening)hefur boðið okkar og öðrum Norðurlandaþjóðum auk Baltnesku löndunum á ráðstefnur og námskeið sem haldin verða á ensku núna á árinu í Osló. Hægt er að sjá upplýsingar um þessa möguleika hérna.
Fréttabréf FIE – Janúar 2014
Fræðslunefnd hefur tekið saman fyrsta fréttabréf FIE á árinu.
Í fréttabréfinu má finna auglýsingu um annan morgunvarðarfund vetrarins, sem verður 29. janúar 2014, kynning á fræðslunefnd félagsins, umfjöllun um fyrsta morgunverðarfund vetrarins sem haldinn var 4. desember síðastliðinn og pistill frá stjórn FIE.
Fréttabréfið má nálgast hér
Alþjóða ráðstefna IIA í London 6-9 júli 2014
Í júlí n.k. mun IIA halda árlega alþjóðaráðstefnu sína (International Conference) í London. Alþjóðaráðstefnur IIA eru stærstu viðburðir sem haldnir eru á vegum samtakanna ár hvert. Mjög fróðlegt getur verið að sækja slíkar ráðstefnur. Við viljum benda félagsmönnum á að í ár er staðsetning ráðstefnunnar sérstaklega hagstæð fyrir félagsmenn FIE því tiltölulega stutt er að fara fyrir okkur á ráðstefnuna í ár þar sem hún verður haldin í London. Nánari upplýsingar um alþjóðaráðstefnuna má finna á heimasíðu ráðstefnunnar: http://ic.globaliia.org
Morgunverðarfundur 29. janúar 2014
Annar morgunverðarfundur vetrarins verður haldinn á Grand hótel Reykjavík þann 29. janúar næstkomandi. Að þessu sinni verður efni fundarins: „Gagnaleki og gagnastuldur – netöryggi“ og munu tveir sérfræðingar fjalla um efnið hvor með sína nálgun en þeir munu nálgast efnið út frá sjónarhóli innri endurskoðenda og hvaða atriðum þeir þurfa að vera vakandi fyrir í þeim fyrirtækjum þar sem þeir starfa.
Fyrst mun Úlfar Andri Jónasson sérfræðingur í upplýsingaöryggi hjá Deloitte fjalla um hvað innri endurskoðendur þurfa að hafa helst í huga um varnir gegn gagnaleka og gagnastuldi. Fjallað verður um nauðsyn upplýsingaöryggisstefnu fyrirtækja, meðal annars atriða eins og lykilorðastefnu, dulkóðun tölva og snjalltækja. Einnig er komið inn á netárásir og hvernig fyrirtæki geta varist slíkum árásum.
Næstur mun Jón Kristinn Ragnarsson, ráðgjafi í áhættustjórnun, upplýsingaöryggi og upplýsingatækni hjá Capacent fjalla um skýjalausnir. Farið verður yfir hvernig skýja lausnir eru helst notaðar af fyrirtækjum og stofnunum, hverjir eru kostnirnir og hverjar eru hætturnar? Skoðað verður hvað innri endurskoðendur þurfa að hafa í huga nú þegar enn fleiri aðilar leitast við að flytja gögn sín í hið óræða en margumrædda ský.
Fræðslunefnd vonast eftir betri þátttöku á morgunfundinn 29. janúar en síðasta fund þar sem að mati fræðslunefndar er um að ræða efni sem ætti að höfða til allra félagsmanna. Sérstaklega eftir nýjustu fréttir um netárásir á heimasíður íslenskra fyrirtækja.
Fundurinn hefst kl. 8:30 en morgunverður verður í boði frá kl. 8:00. Vinsamlegast skráið þátttöku á fie@fie.is í síðasta lagi á hádegi 27. janúar. Fundargjald er 2.800 kr.
Kveðja, fræðslunefnd
