Fyrirlestrar frá Innri endurskoðunardeginum eru komnir inn á lokaða svæðið.
Innri endurskoðunardagurinn 23 mars 2018 – Dagskrá og skráning
Á ráðstefnunni verður fjallað um ávinning af störfum innri endurskoðunar að mati hagsmunaaðila. Þá verður farið yfir stöðu og skipulag innri endurskoðunar hjá hinu opinbera á Íslandi og Norðurlöndunum og hvað þurfi að huga að við setningu reglugerðar til að stuðla að því að innri endurskoðun innan ríkisrekstrar nái markmiðum sínum.
Athugið að það þarf að skrá sig á viðburðinn. SKRÁNING HÉR

Global Council 2018
Meira en 150 þáttakendur frá 80 aðildarfélögum ásamt framkvæmdastjórn IIA og stjórnendum aðildarfélaga og starfsmönnum IIA Global komu saman í Panama borg, Panama, fyrir 2018 Global Council. Fulltrúar tóku þátt í umræðum um margvísleg efni þ.m.t 2019–23 Global Strategic Plan, tvær leiðir til hlítni við staðlanna (Standards conformance) og virði alþjóðlegra vottanna. Hér að neðan er slóð á fyrirlestra og efni þessarar ráðstefnu.
Félagsmaður lýkur QIAL faggildingarprófi
Guðmundur I. Bergþórsson framkvæmdastjóri innri endurskoðunar OR, hlaut QIAL faggildingu hjá IIA nú í byrjun desember. Ásamt því að óska Guðmundi til hamingju með þessa faggildingu vill stjórn FIE benda félagsmönnum á að nánari upplýsingar um faggildinguna má finna á heimasíðu FIE og á heimasíðu IIA.
Félagsmenn ljúka faggildingarprófum
Tveir félagsmenn hafa lokið faggildingarprófum hjá IIA það sem af er 2017.
Guðmundur Óli
Magnússon lauk CIA prófi í Nóvember. Guðmundur Óli er fæddur 1990 og er því 27 ára gamall. Hann útskrifaðist sem hagfræðingur frá Háskóla Íslands árið 2014 og með M.Acc. gráðu í reikningsskilum og endurskoðun frá sama skóla fyrr á þessu ári. Guðmundur Óli starfar sem sérfræðingur á endurskoðunarsviði Ríkisendurskoðunar.
Á sama tíma lauk Sigríður Guðmundsdóttir CRMA prófi.
Stjórn FIE óskar þessum félagsmönnum til hamingju með árangurinn.
Nýtt tölublað Global Perspectives and Insights komið út
Nýjasta tölublað Global Perspectives and Insights útskýrir þá þætti sem aðskilja og eru sameiginlegir með innri og ytri endurskoðun. Öðlist betri skilning á þeim þáttum sem einkenna þá vinnu sem er verið að framkvæma og þau hlutverk og skil sem eru á milli þessara aðila.
Smellið hér til að hlaða niður eintaki.
