Breytingar hjá Alþjóðasamtökum innri endurskoðenda – Global Assembly

Mikilvægar breytingar tóku gildi á stjórnskipulagi Alþjóðasamtakanna í byrjun árs. Global Council var lagt niður og Global Assembly tók til starfa. Hvert aðildarfélag tilnefnir sinn aðalfulltrúa í Global Assembly til tveggja ára og einn varafulltrúa.  Stjórn FIE tilnefndi Ingunni Ólafsdóttur, formann félagsins sem sinn aðalfulltrúa og Sigrúnu Lilju Sigmarsdóttur sem varafulltrúa. Stjórnarformaður Alþjóðasamtakanna er formaður Global Assembly.

Global Assembly mun sinna ráðgefandi hlutverki fyrir stjórn Alþjóðasamtakanna um stefnumótandi áherslur og önnur mikilvæg málefni fagstéttarinnar. Þá er því ætlað að stuðla að samræmingu á stefnu samtakanna og aðildarfélaganna og vera vettvangur fyrir leiðtoga fagstéttarinnar til að miðla upplýsingum og hugmyndum til samtakanna og koma að eflingu innri endurskoðunar á heimsvísu.

Global Assembly kemur saman fjórum sinnum á ári, þar af á þremur fjarfundum. Fulltrúar eru skyldugir til að mæta og verður staðfundirnir haldnir víðsvegar um heiminn. Fyrsti fundur Global Assembly verður 11. febrúar (fjarfundur) en fyrsti staðfundurinn í London dagana 29. mars – 1. apríl 2020. Á dagskrá fundarins er stefna Alþjóðasamtakanna fyrir árin 2019-2023.

Fræðslufundur 20. nóvember 2019

Virðisaukandi aðferðir í innri endurskoðun.


The Internal Audit Ambition Model (IIA) / Agile hugmyndafræði.

Hvernig geta innri endurskoðendur þróað sína nálgun og aðferðafræði til að skila sýnilegu virði, í heimi óvissu og sífellt hraðari breytinga?

Erindi fræðslufundarins eru um The Internal Audit Ambition Model frá IIA og Agile hugmyndafræðina, sem leið til að hjálpa fyrirtækjum að finna nýjar leiðir til að takast á við breytt umhverfi.

Á fundinum mun Ingunn Ólafsdóttir innri endurskoðandi Háskóla Íslands, og formaður Félags um innri endurskoðun fjallar um The Internal Audit Ambition Model frá IIA.

Seinni hluti fundarins verður í umsjón Kristrúnar Önnu Konráðsdóttur, verkefnaráðgjafi hjá VÍS, sem hefur ástríðu fyrir því að hjálpa fólki og fyrirtækjum að finna nýjar leiðir til að takast á við breytt umhverfi. Hún nýtir Agile hugmyndafræði til að spegla áskoranir og svara krefjandi spurningum.

Fræðslufundur FIE verður haldinn á Grand hótel Reykjavík - Gallerí
miðvikudaginn 20. nóvember kl. 8:00-10:00.

Verð: 5.500 kr. fyrir félagsmenn og kr. 6.500 fyrir utanfélagsmenn. Innifalinn morgunverður og kaffi.
Tvær endurmenntunareiningar í endurskoðunarflokki.

Skráning er með tölvupósti á fie@fie.is fyrir kl.12 þann 18. nóvember

Ófjárhagslegar upplýsingar og ábyrgar fjárfestingar frá sjónarhóli innri endurskoðunar

Næsti morgunverðarfundur verður haldinn á Grand Hótel 31. október 2019 kl. 08:00-10:00.  Bjarni Herrera, framkvæmdastjóri og einn eigandi CIRCULAR Solution og Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir, framkvæmdastjóri Markaða hjá Landsbankanum og fyrsti stjórnarmaður samtaka um ábyrgar fjárfestingar IcelandSIF munu fjalla um ófjárhagslegar upplýsingar og ábyrgar fjárfestingar frá sjónarhóli innri endurskoðunar. 

Verð 5.500 kr. fyrir félagsmenn og kr. 6.500 fyrir utanfélagsmenn.  Innifalinn er morgunverður og kaffi.  Ein endurmenntunareining í siðferðisflokki og ein í endurskoðunarflokki. 

Skráning í gegnum fie@fie.is.  Allir velkomnir!

Könnun um þriggja þrepa eftirlitslíkanið (e. Three lines of defence)

Innan Alþjóðasamtaka innri endurskoðenda (IIA) er nú unnið að uppfærslu á hinu svokallaða þriggja þrepa eftirlitslíkani (e. Three lines of defence). Í tengslum við þá uppfærslu óska alþjóðasamtökin eftir því að meðlimir og aðrir hagsmunaaðilar taki þátt í könnun um eftirlitslíkanið. Hægt er að fræðast nánar um líkanið og taka þátt könnuninni með því að smella hér. Könnunin er opin til 19. september n.k.

 

Afsláttur af umsóknargjaldi CRMA í júlí

Í júlí veitir IIA afslátt af umsóknargjaldi að CRMA fagvottun og geta félagsmenn sparað sér allt að 230 dollara með því að nýta sér þetta tilboð.

CRMA vottun er viðurkenning á að viðkomandi hafi hæfni til að framkvæma staðfestingarverkefni með sérstakri áherslu á að gerð sé grein fyrir hvernig áhættu er stýrt í skoðunarefninu. Nánar má lesa um fagvottunina hér.

Næstu viðburðir